Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Samherja Ísland ehf., kt. 440400-4340, til áframhaldandi reksturs heitloftsþurrkunar fiskafurða að Austurhlíðarvegi 2, Laugum í Reykjadal.
Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst á tímabilinu 5. október til kl. 12:00 þann 12. október 2026. Athugasemdir bárust við auglýst áform og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





