Unnið að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar. Þeir ættu að vera að fullu komnir upp innan skamms.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf.

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf., kt. 480998-2789, til niðurrifs á minni flotkví fyrirtækisins á lóð fyrirtækisins á Óseyrarbraut 31 í Hafnarfirði.

Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.

Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til og með 4. september 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni í gegnum vefinn hér að neðan, eða á netfangið uos@uos.is merktar UOS-7087.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800