Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf., kt. 480998-2789, til niðurrifs á minni flotkví fyrirtækisins á lóð fyrirtækisins að Óseyrarbraut 31 í Hafnarfirði.
Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst frá 31. ágúst til og með 4. september 2026. Ein athugasemd barst við áformunum.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.





