Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Ákvörðun um breytingu á starfsleyfi Arnarlax í Þorlákshöfn í Ölfusi

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að breyta starfsleyfi Arnarlax í Þorlákshöfn þannig að í starfsleyfinu séu ákvæði um vöktun áhrifa starfseminnar á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra á grundvelli 2. mgr. 22. gr. laga um stjórn vatnamála nr. 36/2011, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

Tillaga að starfsleyfi var auglýst frá 8. september til 6. október sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800