Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að breytingu á starfsleyfi Sæbýli reksturs ehf. í Grindavík.
Rekstraraðili hefur gilt starfsleyfi fyrir landeldi á 200 tonnum af sæeyrum af tegundinni Haliotis discus hannai ættuð frá Japan og Haliotis rufescens ættuð frá Kaliforníu sem tók gildi þann 24. janúar 2022 og gildir til 24. janúar 2038. Í breytingunni felst að rekstraraðila er heimilað eldi á sæeyrum af ættkvíslinni Haliotidae. Breytingin felur ekki í sér aukið umfang.
Að auki hefur stofnunin að eigin frumkvæði unnið tillögu að breytingu á vöktunarákvæði starfsleyfisins til þess að í starfsleyfinu séu ákvæði um vöktun áhrifa starfseminnar á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra á grundvelli 2. mgr. 22. gr. laga um stjórn vatnamála nr. 36/2011, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar inn í gegnum vefinn hér að neðan, eða sendar Umhverfis- og orkustofnun á uos@uos.is, merktar UOS-7555.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 19. desember 2026.





