Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir endurvinnslustöð Hringrásar ehf. að Álhellu 1, Hafnarfirði. Rekstraraðili hefur heimild til að taka á móti allt að 80.000 tonnum af úrgangi á ári til meðhöndlunar. Þar af er heimild til meðferðar á 35.000 tonnum/ári af málmum í tætara og meðhöndlun á 45.000 tonnum/ári af málmum, hjólbörðum, rafgeymum, rafhlöðum ökutækja, pappa, plasti, tróði, timbri og brennsluefni (RDF efni).
Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 26. júní til og með 26. júlí 2026 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma.
Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





