Niðurgreiðslur húshitunar
Þar sem húshitun með raforku er að jafnaði dýrari en húshitun frá jarðvarmaveitum niðurgreiðir ríkið dreifi- og flutningskostnað raforku til húshitunar lögheimila. Markmið niðurgreiðslunnar er að jafna búsetuskilyrði óháð aðgengi að jarðvarma.
Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar af hálfu ríkisins eru umtalsverðar. Ríkið niðurgreiðir dreifi- og flutningskostnað raforku til húshitunar að fullu, miðað við notkun allt að 40.000 kWh á ári fyrir hvern notanda.
Samkvæmt lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar nr. 78/2002 og reglugerð um framkvæmd laganna nr. 698/2013 þurfa allir þeir sem hyggjast njóta niðurgreiðslu að sækja sérstaklega um hana til Umhverfis- og orkustofnunar, sem fer með eftirlit með framkvæmd laganna.
Eigandi eða leigjandi íbúðarhúsnæðis sem ekki hefur aðgang að fullnægjandi húshitun með jarðvarma getur sótt um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar. Umhverfis- og orkustofnun metur á grundvelli umsóknar hvort skilyrði laganna fyrir niðurgreiðslu, samanber 4. grein, séu uppfyllt.
Ferli og skilyrði
Auglýsing um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, með síðari breytingum, og fjárlög fyrir árið 2026 hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið fjárhæð niðurgreiðslna sem hér segir:
a) Niðurgreiðsla á raforku til húshitunar:
á veitusvæði HS Veitna 8,24 kr./kWst.
á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í dreifbýli* 13,64 kr./kWst.
á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í þéttbýli 10,10 kr./kWst.
á veitusvæði RARIK í dreifbýli* 13,29 kr./kWst.
á veitusvæði RARIK í þéttbýli 9,49 kr./kWst.
á veitusvæði Veitna ohf., 8,77 kr./kWst.
* Niðurgreiðslur í dreifbýli taka mið af dreifbýlisframlagi eins og það var 31.12.2025 hjá dreifiveitum með heimild til dreifbýlisgjaldskrár
b) Niðurgreiðsla á vatni frá kyntum hitaveitum:
HEF Veitur 11,05 kr./kWst.
Orkubú Vestfjarða 10,55 kr./kWst.
HS Veitur 8,62 kr./kWst.
c) Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar.
Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar tekur mið af meðalverði niðurgreiddrar raforku til húshitunar í dreifbýli, nýtni olíuhitunarkerfis og olíuverðs í hverjum ársfjórðungi samkvæmt útreikningum Umhverfis- og orkustofnunar.
d) Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis.
Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis skal vera 2,0 kr./kWst.
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið að hámarksfjöldi niðurgreiddra kWst./ári til hitunar verði 40.000 kWst. sem svarar til 888 m³/ári hjá kyntum hitaveitum og 4.480 lítrar af olíu á ári hjá þeim sem hita með olíu.
Auglýsing þessi gildir frá 1. janúar 2026 og kemur í stað auglýsingar sama efnis, nr. 5/2026.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





