Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Varmadælur

Umhverfisvænar lausnir

Orkugreiðendur, sem ekki eiga kost á að nýta jarðvarma til húshitunar, hita nær allir hús sín með rafmagni. Húshitun með raforku er talsvert dýrari en húshitun frá jarðvarmaveitu. Til að jafna búsetuskilyrði greiðir ríkið niður dreifi- og flutningskostnað raforku til hitunar heimila.

Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar af hálfu ríkisins eru umtalsverðar þar sem ríkið niðurgreiðir að fullu dreifi- og flutningskostnað raforku til húshitunar hjá notendum, þó aldrei meira en skilgreindur hámarksfjöldi kWst hvers notanda. Segja má að þeir sem njóta niðurgreiðslna séu í raun að hita híbýli sín í samvinnu við ríkið. Það er því sameiginlegt hagsmunamál ríkis og notenda að ná niður kostnaði við rafhitun.

Í því samhengi er hægt að nefna varmadælur sem afar áhugaverðan kost. Varmadælur eru umhverfisvæn lausn sem bætir orkunýtingu og getur lækkað bæði rafhitunarkostnað notenda og niðurgreiðslukostnað ríkisins umtalsvert.

Cats relax on top of air conditioning units.

Hvernig sæki ég um?

Þú sækir um niðugreiðslu í þjónustugátt (þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum).

Sækja um niðurgreiðslu

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800