Uppruni raforku

Íslensk fyrirtæki sem framleiða rafmagn geta selt upprunaábyrgðir til bæði innlendra og evrópskra aðila og hafa gert það frá árinu 2011

Umhverfis- og orkustofnun hefur það hlutverk að reikna út uppruna raforku á Íslandi eftir orkugjöfum ásamt öðru tengdu útgáfu á upprunaábyrgðum. Samkvæmt lögum er Landsneti falið að gefa út upprunaábyrgðir á Íslandi.

Ef upprunaábyrgðir eru seldar til erlendra aðila í Evrópu þarf að flytja inn ígildi samsvarandi magns raforku í sömu hlutföllum og samsetning raforkuframleiðslu er í Evrópu. Þetta er gert til að koma í veg fyrir tvítalningu sömu orkueininga. Það er skýringin á því að uppruni raforku á íslandi samanstendur af endurnýjanlegri orku, jarðefnaeldsneyti og kjarnorku enda er samsetning raforku í Evrópu aðeins að litlu leyti endurnýjanleg raforka. Íslenskir raforkukaupendur eiga að fá upplýsingar um uppruna raforku á eða með raforkureikningi sínum einu sinni á ári, samanber reglugerð nr. 757/2012 um birtingu upplýsinga sem eru tengdar upprunaábyrgðum raforku.

Upprunaábyrgðir á raforku eru til þess að orkusali geti fullvissað orkukaupanda um að framleidd hafi verið orka með endurnýjanlegum orkugjöfum. Kaupendur upprunaábyrgða eru þeir sem sjá hag sinn í því að styðja við raforkuframleiðslu frá endurnýjanlegum orkugjöfum og styrkja þannig ímynd sína með því að kaupa upprunaábyrgðir raforku.

Athygli er vakin á því að þrátt fyrir útreiknaðan uppruna raforku á Íslandi er íslensk raforka nánast öll framleidd úr endurnýjanlegum orkugjöfum.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800