Greiningar og gögn
Umhverfis- og orkustofnun safnar reglubundið gögnum um vinnslu, eigin notkun stöðva og sölu raforku frá raforkufyrirtækjum á Íslandi. Einnig eru teknar saman upplýsingar um það til hvers raforkan er notuð hjá endanlegum notendum, það er skiptingu raforkunnar í notkunarflokka.
Einnig er safnað gögnum um uppsett afl virkjana og orkuuppsprettur þeirra, sem í dag eru vatnsafl, jarðvarmi, eldsneyti og vindorka. Tölur um þessa þætti ná mislangt aftur í tímann og hafa þær elstu í sumum tilvikum verið áætlaðar.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





