Raforkutölfræði

Gagnaöflun

Umhverfis- og orkustofnun safnar reglubundið gögnum um vinnslu, eigin notkun stöðva og sölu raforku frá raforkufyrirtækjum á Íslandi. Einnig eru teknar saman upplýsingar um það til hvers raforkan er notuð hjá endanlegum notendum, það er skiptingu raforkunnar í notkunarflokka.

Einnig er safnað gögnum um uppsett afl virkjana og orkuuppsprettur þeirra, sem í dag eru vatnsafl, jarðvarmi, eldsneyti og vindorka. Tölur um þessa þætti ná mislangt aftur í tímann og hafa þær elstu í sumum tilvikum verið áætlaðar.

Talnaefni um raforku er birt á síðunni Útgefið talnaefni á vef Umhverfis- og orkustofnunar og í mælaborðinu Raforkuvísar.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800