Tekjur og gjaldskrár sérleyfisfyrirtækja

Tekjumörk

Raforkueftirlitið ákvarðar leyfðar tekjur fyrir sérleyfisfyrirtæki, og kallast þær tekjumörk. Tekjumörk eru heildartekjur sem sérleyfisfyrirtæki mega hafa að viðbættum óviðráðanlegum kostnaði. Tekjurnar eiga að nægja fyrir verðlagsleiðréttum rekstrargjöldum, afskriftum og arðsemi af fastafjármunum.

Tekjumörkin setja viðmiðunarútgjöld á fimm ára fresti og kallast það setning tekjumarka. Markmiðið með setningu viðmiðunarútgjalda er að ná fram hagræðingu og skilvirkni í rekstri sérleyfisfyrirtækjanna. Á hverju ári fer svo fram uppgjör fyrir nýliðið ár þar sem bókhald sérleyfisfyrirtækja er borið saman við sett tekjumörk. Bókhald vegna tekjumarka fylgir raforkulögum en er þó að miklu leyti hliðstætt ársreikningum sérleyfisfyrirtækjanna.

Landsnet skiptir tekjumörkum sínum í tvennt, annars vegar flutning til dreifiveitna í íslenskum krónum og hins vegar flutning til stórnotenda, sem gerður er upp í bandarískum dollurum. Stórnotandi er notandi sem notar innan þriggja ára á einum stað að minnsta kosti 80 gígavattstundir. Aðrir notendur kallast almennir notendur.

Tvær dreifiveitur skipta tekjumörkum sínum upp í þéttbýli og dreifbýli, en hinar þrjár eru með sameiginleg tekjumörk fyrir alla notendur á dreifisvæði sínu.

Þegar tekjumörkum er skipt upp í almenna notendur og stórnotendur, eða í þéttbýli og dreifbýli, þá miða gjaldskrár fyrirtækjanna einnig við þessa skiptingu. Þannig er Landsnet með tvær gjaldskrár, og einnig eru aðskildar gjaldskrár eftir svæði hjá RARIK og Orkubúi Vestfjarða.

Uppskipti tekjumarka krefjast greiningar á sameiginlegum kostnaði og fjárfestingum sem skipt er á milli tekjumarkanna. Raforkueftirlitið hefur eftirlit með þeirri greiningu ásamt öllum gögnum og útreikningum við setningu og uppgjör tekjumarka og ákvörðun gjaldskráa.

Lagagrundvöllur tekjumarka er í samræmi við 12. og 17. gr. raforkulaga nr. 65/2003 með síðari breytingum, reglugerð um framkvæmd raforkulaga nr. 1040/2005 með síðari breytingum og reglugerð nr. 192/2016 með síðari breytingum um mat á vegnum fjármagnskostnaði sem viðmið um leyfða arðsemi.

Nánar um gjaldskrár

Gjaldskrár flutningsfyrirtækis og dreifiveitna eiga að gefa tekjur til jafns við tekjumörk fyrirtækjanna að viðbættum óviðráðanlegum kostnaði. Gjaldskrárbreytingar eru sendar til raforkueftirlitsins til yfirferðar áður en þær taka gildi.

Dreifiveitur innheimta samkvæmt sínum gjaldskrám og sjá einnig um innheimtu vegna flutnings raforku og jöfnunargjalds hjá almennum notendum. Jöfnunargjaldið greiðist af öllum almennum notendum og er nýtt til að niðurgreiða dreifikostnað notenda sem staðsettir eru á dreifiveitusvæði sem skilgreint er sem dreifbýli.

Tvö svæði eru skilgreind sem dreifbýli í dreifingu raforku, annars vegar Vestfirðir utan þéttbýlisstaða og hins vegar dreifisvæði RARIK utan þéttbýlisstaða. Skilgreining á dreifbýli og þéttbýli fylgir raforkulögum, reglugerð 1040/2005 um framkvæmd raforkulaga og skilgreiningu Hagstofu Íslands um byggðarkjarna.

Gjaldskrár í flutningi og dreifingu skiptast annars vegar í aflgjald, sem miðar við hámarksnotkun, og hins vegar orkugjald, sem miðar við hve mikil raforka er notuð á tímabilinu. Gjaldi er skipt eftir því hvort er um að ræða útmötun frá kerfinu eða innmötun inn á kerfið frá virkjunum. Einnig er tengigjald innheimt fyrir nýjar tengingar.

Kostnaður sérleyfisfyrirtækja er að mestu bundinn við flutnings- og dreifigetu og er því fastur til skamms og meðallangs tíma litið. Hagkvæmast er að nýta kerfin með sem jöfnustum hætti til að afkastageta sé ekki ónýtt stóran hluta sólarhrings. Þess vegna greiða notendur með ójafna notkun hlutfallslega hærra aflgjald því kostnaður sérleyfisfyrirtækjanna er að mestu fastur með tilliti til hámarksnotkunar. Dæmi um notendur með ójafna notkun eru hleðslustöðvar, en dæmi um notendur með jafna notkun eru stórnotendur.

Sérleyfisfyrirtæki eiga að byggja gjaldskrár sínar upp þannig að þær endurspegli kostnað og stuðli að skilvirkni, hagkvæmni og jafnræði. Raforkueftirlitið leggur mikla áherslu á greiningu gjaldskráa með tilliti til ofangreindra markmiða og sendir tilmæli til sérleyfisfyrirtækjanna varðandi áherslur og úrbætur.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800