Greinargerðir og erindi

Raforkueftirlitið heldur utan um greinargerðir og erindi er varða raforkumál. Flest skjölin voru gefin út af Orkustofnun.

Greinargerð NVE um íslenska raforkumarkaðinn

Greinargerð norsku orku- og vatnamálastofnunarinnar (Norges vassdrags- og energidirektorat, NVE) um íslenska raforkumarkaðinn og eftirlit með honum.

Ávöxtunarkrafa vegna tekjumarka

Greinargerð Friðriks Más Baldurssonar um ávöxtunarkröfu vegna tekjumarka flutnings- og dreififyrirtækja raforku.

Raforkuverð til heimilisnota (október 2006)

Greinargerð Orkustofnunar frá október 2006 um raforkuverð til heimilisnotkunar.

Framkvæmd nýrra raforkulaga og breytingar á raforkuverði (febrúar 2005)

Greinargerð Orkustofnunar frá febrúar 2005 um framkvæmd nýrra raforkulaga og breytingar á raforkuverði.

Breytingar á raforkumarkaði (ársfundur í mars 2005)

Erindi og kynning um breytingar á raforkumarkaði frá ársfundi Orkustofnunar í mars 2005.

Stuttar greinargerðir (apríl 2005)

Stuttar greinargerðir Orkustofnunar frá apríl 2005 um helstu breytingar á raforkuumhverfi með nýjum raforkulögum og helstu ástæður breytinga á raforkuverði um áramótin 2004/2005.

Gjaldtaka vegna innmötunar virkjana

Greinargerð um gjaldtöku vegna innmötunar virkjana.

Tillögur Eurelectric um aðskilnað rekstrareininga

Í raforkulögum er fjallað um aðskilnað samkeppnis- og sérleyfisþátta raforkufyrirtækja. Þar eru tilgreind atriði svo sem bókhaldslegur aðskilnaður, trúnaður í meðferð upplýsinga, jafnræði við starfrækslu sérleyfisþátta og bann við því að nota fjármuni sérleyfisþátta til að greiða niður samkeppnisþætti. Allt eru þetta nauðsynleg atriði til að sanngjörn og heiðarleg samkeppni geti þróast á raforkumarkaðnum. Eurelectric, samtök raforkufyrirtækja, hafa gefið út tillögur til aðildarfélaga sinna um aðskilnað rekstrareininga, með áherslu á að starfsemi fyrirtækjanna sé í samræmi við tilskipun Evrópubandalagsins og komið sé í veg fyrir hagsmunaárekstra. Orkustofnun þýddi tillögurnar til að auðvelda starfsfólki raforkufyrirtækja að kynna sér þær.

Norræn skýrsla um smásölumarkað raforku

Samtök eftirlitsstofnana með orkufyrirtækjum á Norðurlöndum (NordREG) luku árið 2005 við skýrsluna Supplier Switching in the Nordic Countries – Current practices and recommendations for the future development. Í skýrslunni eru settar fram tillögur að aukinni samræmingu á smásölumarkaði milli Norðurlandanna, lýst stöðu mála í hverju landi, helstu annmörkum og tillögum til úrbóta. Tillögurnar voru lagðar fyrir ráðherranefnd Norðurlandaráðs 1. mars 2006.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800