Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Ábyrgðarmenn í markaðssetningu

Í markaðssetningu felst að bjóða vöru fram á markaði, hvort heldur er gegn greiðslu eða án endurgjalds. Innflutningur telst vera markaðssetning.

Um skyldur þeirra sem markaðssetja notendaleyfisskyldar vörur segir í reglugerð nr. 677/2021 um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna:

  • Dreifandi sem markaðssetur notendaleyfisskyldar vörur skal tilgreina nafngreindan ábyrgðaraðila til að tryggja að nægjanleg fagþekking sé innan fyrirtækisins.
  • Slíkur einstaklingur skal vera til taks þegar sala fer fram til að veita viðskiptavinum fullnægjandi upplýsingar að því er varðar notkun plöntuverndarvara eða útrýmingarefna og áhættu fyrir heilbrigði og umhverfið.
  • Láti viðkomandi ábyrgðaraðili af störfum hjá hlutaðeigandi verslun eða birgi skal tilkynna Umhverfis- og orkustofnun um nýjan ábyrgðaraðila sem uppfyllir skilyrði.

Tilnefndur ábyrgðaraðili skal hafa lokið námi eða námskeiði sem Umhverfis- og orkustofnun metur gilt og staðist próf sem sýnir fram á þekkingu hans. Landbúnaðarháskóli Íslands sér um að halda námskeið fyrir ábyrgðarmenn, nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans: www.lbhi.is/endurmenntun.

Dreifandi sem markaðssetur notendaleyfisskyldar vörur tilnefnir ábyrgðaraðila í markaðssetningu í gegnum Ísland.is.

Image

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800