Byggingariðnaður
Góð ráð fyrir verktaka
Plast í byggingariðnaði
Plast er víða notað í byggingariðnaði, svo sem í einangrun, glugga, lagnir, gólfefni, innréttingar og svo mætti lengi telja. Þó að plast sé ekki stærsti úrgangsflokkurinn í byggingariðnaði er nauðsynlegt að tryggja að plastefni skili sér í hringrás og forðast notkun skaðlegra plastefna eins og mögulegt er.
Ábyrg plastnotkun í byggingariðnaði

Hringrásarhönnun
Byggingar sem eru hannaðar samkvæmt umhverfisstöðlum- eða vottunum taka tillit til þess að byggingar- og niðurrifsúrgangur sé ekki meiri en efni standa til og skaðleg efni séu ekki notuð við byggingarferlið. Í viðmiðum Svansins fyrir endurbætur er til dæmis lögð áhersla á hringrásarhagkerfið og horft sérstaklega til þess hvaða hlutar byggingar henta til endurnotkunar og endurvinnslu.
Frekari umfjöllun um hringrásarhagkerfið í mannvirkjagerð má meðal annars finna í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð II. hluta sem Byggjum grænni framtíð, samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins, gaf út árið 2022.

Tryggja að plast endi í hringrás
Auknar kröfur um endurnýtingu
+Áætlun um meðhöndlun úrgangs
+Hvar er hægt að koma byggingarúrgangi í endurnýtingu?
+
Forðist PVC og frauðplast
PVC plast og PS plast eru algengar plasttegundir notaðar í byggingariðnaði og er það miður þar sem þessar plasttegundir innihalda heilsuspillandi efni. Meirihluti framleidds PVC plasts í heiminum er notað í einhverskonar byggingarvörur, svo sem vinyldúka, lagnir, kapla og fleira. PS plast þekkjum við best sem frauðplast. Rannsóknir hafa sýnt að báðar þessar plasttegundir, PVC og PS, hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks og umhverfið.
Skaðleg áhrif PVC
+Skaðleg áhrif frauðplasts
+Umhverfisvottaðar byggingarvörur
+Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





