Saman gegn sóun
Upplýsingaveita og samstarfsvettvangur fyrir einstaklinga, fyrirtæki og alla þá sem vilja taka þátt í eflingu hringrásarhagkerfisins
Um verkefnið
Saman gegn sóun er almenn stefna umhverfis, orku- og loftslagsráðherra um úrgangsforvarnir sem gildir frá árinu 2016 til 2027. Umhverfis- og orkustofnun fer með umsjón með Saman gegn sóun.
Í samræmi við hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins er sett í forgang að draga úr myndun úrgangs og stuðla þannig að minni eftirspurn eftir náttúruauðlindum. Í stefnunni er lögð áhersla á nægjusemi, betri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.

Matarsóun
Þriðjungi þeirra matvæla sem framleidd eru á heimsvísu er sóað. Með því að draga úr matarsóun má vernda umhverfið, nýta auðlindir betur og spara fé. Með því að breyta umgengni okkar við mat getum við dregið úr óþarfa sóun.

Plast
Plast er mjög nytsamlegt en við erum að nota of mikið af því. Við þurfum að draga verulega úr notkun þess, endurnota og endurvinna.

Textíll
Verum partur af lausninni og ekki vandanum. Kaupum minna, kaupum notað, notum lengur, gerum við og endurvinnum meira!

Raftæki
Það er til mikils að vinna að kaupa færri og vandaðari raftæki, nota þau lengur og skila þeim á endurvinnslustöðvar svo hægt sé að koma verðmætum efnum aftur í hringrásina.

Atvinnulífið
Að draga úr sóun í rekstri er bæði hagkvæmt og hefur jákvæð áhrif á umhverfið. Hringrásarhagkerfið snýst um að viðhalda verðmætum auðlinda. Helstu aðgerðir sem tryggja að auðlindum sé haldið í hagkerfinu eru að hætta öllum óþarfa, deila, gera við, endurnota, endurframleiða og endurvinna.
Við viljum heyra frá þér

Birgitta Stefánsdóttir
birgittas@uos.is

Birgitta Steingrímsdóttir
birgitta.steingrimsdottir@uos.is

Þorbjörg Sandra Bakke
thorbjorgb@uos.is

Bergdís Helga Bjarnadóttir
Í orlofi
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





