Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Matarsóun

Þriðjungi þeirra matvæla sem framleidd eru á heimsvísu er sóað. Með því að draga úr matarsóun má vernda umhverfið, nýta auðlindir betur og spara fé. Með því að breyta umgengni okkar við mat getum við dregið úr óþarfa sóun.

„Sjö af hverjum tíu reyna að lágmarka matarsóun“

Lang flestir vilja leggja sitt af mörkum til að draga úr matarsóun. Þetta eru niðurstöður þriggja kannana meðal svarenda sem endurspegla viðhorf íbúa Íslands.

Hvað get ég gert?

Ástæður matarsóunar heimila eru margþættar. Þær tengjast því hvernig við skipuleggjum okkur, kaupum inn, geymum og eldum mat, borðum og nýtum afganga. Hér fylgja ráð um hvað hver og einn getur gert til að breyta sínum vönum til að koma í veg fyrir matarsóun. Ef að við sjáum fram á að matarsóun sé yfirvofandi bendum við líka á leiðir til að gefa og molta mat.

Skipuleggja

+

Versla

+

Geyma

+

Elda

+

Borða

+

Afgangar

+

Gefa

+

Molta

+
Notaðu nefið: plakat um að treysta skynfærunum áður en mat er hent

Hvað get ég lært?

Með því að læra meira um matvæli og matseld er auðveldara að forðast matarsóun. Hér er hægt að læra meira um hvernig hægt er að nýta mismunandi matvæli, geyma þau og elda eitthvað ljúffengt úr þeim.

Af hverju er matarsóun vandamál?

Matarsóun er léleg nýting á auðlindum og fjármunum sem og hefur í för með sér óþarfa neikvæð áhrif á umhverfið. Með því að draga úr matarsóun má nýta dýrmætar auðlindir jarðar betur og spara fé.

Myndskreyting gegn matarsóun

Þriðjungi þess matar sem er framleiddur er sóað

Þriðjungi þess matar sem er framleiddur er sóað samkvæmt Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) eða um 1.3 milljarðar tonna af mat á hverju ári í heiminum. Á Norðurlöndunum er sóað um 3.5 milljónum tonna af mat árlega! Matvælum sem er sóað hefðu mögulega getað brauðfætt milljónir manna og minnkað þá hungursneyð sem steðjar að ýmis staðar í heiminum. Þar að auki hefur framleiðsla matar oft talsverð neikvæð umhverfisáhrif sem þjóna þá engum tilgangi ef maturinn er ekki nýttur og eykur verulega við magn úrgangs sem þarf að urða. Hér er einnig um sóun á fjármunum að ræða þar sem heimili og stóreldhús kaupa í rauninni oft of mikið af mat. Því fæst töluverður samfélagslegur, umhverfislegur og fjárhagslegur ávinningur af því að minnka matarsóun.

Fólk heldur oft að matarsóun skipti ekki máli því matur er lífrænn og brotnar auðveldlega niður. Það er rétt í þeim skilningi að þegar við hendum epli í skógi þá brotnar það eðlilega niður og gefur að mestu frá sér CO2. Hins vegar er meirihluti þessa úrgangs á Íslandi urðaður sem krefst sífellt meira landsvæðis og leiðir til myndunar og losunar gróðurhúsalofttegunda. Þegar lífrænn úrgangur brotnar niður við loftfirrðar aðstæður, líkt og myndast við urðun, þá myndast metan gas. Metan er 21 sinnum virkari gróðurhúsalofttegund en koltvíoxíð og því töluvert verri. Þótt málið sé flókið og margir aðilar komi að því geta nokkrar einfaldar breytingar á venjum okkar og rekstri fyrirtækja haft veruleg áhrif.

Matarsóun skilar sér í 8–10% af hnattrænni losun gróðurhúsalofttegunda

Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (e. UNEP) gaf 2021 út skýrslu sem leggur mat á umfang matarsóunar á heimsvísu. Þeirra niðurstaða er að samanlagt endi 17% af mat í matvöruverslunum, á matsölustöðum og á heimilum í ruslinu. Áætlað er að þetta skili sér í 8 – 10% af losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Ef matarsóun á framleiðslu- og vinnslustigi og dreifingu er tekið inn í myndina verður umfangið enn meira og losunin sömuleiðis. Matvæla– og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna áætlar að um 3,3 milljón kílótonn (3,3 Gt) af losun koldíoxíðígilda í heiminum á ári megi rekja til matarsóunar. Þetta er sérstaklega alvarlegt þar sem matarsóun veldur losun sem myndast að óþörfu.

Matarsóun er mest inni á heimilum, eða ríflega 60% af heildarsóuninni samkvæmt UNEP. Þetta á sérstaklega við í ríkari löndum, eins og til dæmis Íslandi. Mælingar á matarsóun á Íslandi (PDF, 1,1 MB) benda til þess að hver einstaklingur hendi í kringum 90 kíló af mat árlega. Í hefðbundinni fjögurra manna vísitölu fjölskyldu er því hent 360 kílóum á ári. Það eru nær 7 kíló af mat á viku! Þetta umfang svipar til hinna Evrópulandanna. Til dæmis sýna rannsóknir frá Danmörku, Svíþjóð og Noregi að hver einstaklingur hendir í kringum 80 kíló af mat á ári.

Þessi matarsóun endar sem úrgangur, en meðhöndlun úrgangs var uppspretta 5% af heildarlosun Íslands árið 2019 (án landnotkunnar). Þessi losun á sér fyrst og fremst stað þegar lífbrjótanleg efni, svo sem matarleifar, brotna niður á urðunarstað með tilheyrandi losun metangass. Losun Íslands vegna matarsóunnar er enn meiri ef tekið er tillit til þeirrar losunar sem myndast við framleiðslu af mat sem aldrei verður borðaður.

Í aðgerðaráætlun íslenskra stjórnvalda til að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fram til 2030 er rætt um áhrif matarsóunar á losun. Þar er lögð áhersla á að draga eigi úr losun frá úrgangi um 59% miðað við árið 2018. Þar sem matvæli eru stór hluti urðaðs úrgangs á Íslandi þá mun minni matarsóun óhjákvæmilega draga úr urðun og tilheyrandi losun. Þess vegna er það hluti að aðgerðum stjórnvalda að draga úr matarsóun samhliða því að bann við að urða lífrænan úrgang og urðunarskattur verði settur á. Þessi áhersla íslenskra stjórnvalda er einnig í samræmi við alþjóðlegar áherslur. Í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem sett voru 2015 er lagt til að eigi síður en árið 2030 hafi sóun matvæla á smásölumarkaði og hjá neytendum minnkað um helming á hvern einstakling um heim allan.

Virðiskeðjan

Matarsóun á sér stað á öllum stigum virðiskeðju framleiddra matvæla; við framleiðslu, vinnslu, flutning, sölu, og neyslu. Matarsóun hefur í för með sér ýmis neikvæð umhverfisáhrif, mikla sóun á fjármunum og samfélagsleg áhrif þar sem þeim mat sem er sóað væri mögulega hægt að nýta annars staðar í heiminum. Hér má sjá einfaldaða mynd sem sýnir virðiskeðju framleiddra matvæla. Matvælum sem er sóað á öllum stigum keðjunnar.

Virðiskeðja matvæla: framleiðsla, vinnsla, flutningur, verslun og neysla

1. Framleiðsla

+

2. Vinnsla

+

3. Flutningur

+

4. Verslun

+

5. Neysla

+

Áhugaverðar tölur

Þrjár viðhorfskannanir hafa verið gerðar af Maskínu fyrir hönd Umhverfisstofnunar (nú Umhverfis- og orkustofnunar) árið 2015, 2017 og 2021. Fleiri en þúsund þátttakendur voru spurðir í hvert sinn og byggir á tilviljunarúrtaki úr Þjóðskrá og svörin eru svo viktuð til að endurspegla þjóðina útfrá kyni, aldri og búsetu.

7 af 10Reyna að lágmarka matarsóun
7%Fleiri draga úr matarsóun umhverfisins vegna núna en 2015
7 af 10Telja að umræða um matarsóun hafi aukist

Kennsluefni og vinnugögn

Hér má finna fræðsluefni um matarsóun sem hægt er að hala niður í prentvænum útgáfum. Einnig má nálgast einfalda og skýra glærusýningu um matarsóun sem upplagt er að nýta í fræðsluerindi eða í kennslustund í til dæmis heimilisfræði eða samfélagsfræði.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800