Rannsóknir
Matarsóun á Íslandi er sambærileg því sem gerist í öðrum löndum Evrópu. Umhverfisstofnun (nú Umhverfis- og orkustofnun) hefur framkvæmt mælingar á umfangi matarsóunar þrisvar sinnum.
Umfang matarsóunar 2022
Matarsóun á Íslandi jafngildir um 160 kílóum á hvern íbúa á ári. Tæpur helmingur allrar matarsóunar á sér stað í frumframleiðslu matvæla en um 40% á heimilum. Mælingarnar náðu yfir alla hlekki virðiskeðjunnar, það era.s. frumframleiðslu, vinnslu, framleiðslu, dreifingu og smásölu matvæla, veitingahús, matarþjónustu og heimili. Niðurstöðurnar sýna að matarsóun er fyrst og fremst í frumframleiðslu annars vegar og hins vegar á heimilum.
Matarsóun í frumframleiðslu skýrist fyrst og fremst af umfangsmiklum sjávarútvegi, en þar hefur framleiðslumagnið mest að segja á meðan nýtingin virðist vera góð. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að matarsóun á heimilum hafi ekki aukist frá mælingum árin 2016 og 2019 heldur hafi nokkurn veginn staðið í stað. Erfitt er hins vegar að alhæfa um breytingarnar milli ára þar sem um breytta aðferðafræði er að ræða.
Matarsóun eftir hlekkjum virðiskeðjunnar 2022
Aðferðarfræði
+Svörun og óvissuþættir
+Fyrsta skrefið í reglulegum mælingum
+Tölfræðiskýrslur um umfang matarsóunar
Viðhorf til matarsóunar
Þrjár viðhorfskannanir hafa verið gerðar af Maskínu fyrir hönd Umhverfisstofnunar (nú Umhverfis- og orkustofnunar) árið 2015, 2017 og 2021. Fleiri en þúsund þátttakendur voru spurðir í hvert sinn og byggir á tilviljunarúrtaki úr Þjóðskrá og svörin eru svo viktuð til að endurspegla þjóðina útfrá kyni, aldri og búsetu.
Kannanir Maskínu á viðhorfi til matarsóunar
Ítarefni og rannsóknir
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





