Plast
Plast er mjög nytsamlegt en við erum að nota of mikið af því. Við þurfum að draga verulega úr notkun þess, endurnota og endurvinna.
„ 8 af hverjum 10 hafa minnkað plastnotkun til að draga úr umhverfisáhrifum “
Umhverfiskönnun Gallup árið 2021 gaf til kynna að stór hluti þjóðarinnar reyni að minnka plastnotkun vegna umhverfisáhrifa og að sífellt fleiri tilheyri þessum hóp. Að minnka plastnotkun og flokka sorp er það sem flestir segjast hafa gert til að draga úr umhverfisáhrifum. 70% segjast einnig hafa dregið úr notkun einnota umbúða.
Notkun á plasti er orðin hluti af okkar daglega lífi með öllum sínum kostum og göllum. Plast er eiginlega út um allt, til dæmis í matvælaumbúðum, einnota og margnota borðbúnaði, tölvum, leikföngum, fötum og burðarpokum. Plast var uppgötvað í kringum aldamótin 1900 og varð strax mikilvægur staðgengill fyrir vörur sem gerðar voru úr dýrum svo sem horn, skjaldbökuskeljar og fleira.
Plast er mjög nytsamlegt og uppfinning þess hefur haft í för með sér aukin lífsgæði. Til dæmis er plast mikilvægur hluti í ýmsum öryggisbúnaði, svo sem öryggishjálmum- og gleraugum og barnabílstólum. Plast hefur gert bíla og flugvélar léttari og þar af leiðandi sparað jarðefnaeldsneyti. Notkun plasts í matvælaiðnaðinum hefur aukið geymsluþol margra vara sem aftur dróg úr matarsóun og ýtti undir matvælaöryggi. Plast er líka mjög mikilvægt efni í heilbrigðisþjónustu þar sem það getur stutt við sóttvarnir og hreinlæti.

Reglur um einnota plast: fyrirtæki
Leiðbeiningar fyrir fyrirtæki
Reglur um einnota plast: einstaklingar
Um mitt ár 2021 tóku í gildi reglur sem setja einnota plastvörum hin ýmsu takmörk. Hvernig eiga einstaklingar að bregðast við takmörkunum á einnota plasti og burðarpokum úr plasti?

Bláskelin
Bláskelin er viðurkenning sem er veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu.
Hvað get ég gert?
Plast er mjög nytsamlegt og okkur mjög mikilvægt, en við notum alltof mikið af því. Við þurfum að draga úr notkun þess, auka líftímann og endurvinna það sem við komumst ekki hjá að nota.
Kaupa minna
+Fjölnota í stað einnota
+Versla umbúðalaust
+Flokka
+Vera virkur og virkja aðra
+Af hverju getur plast verið vandamál?
Framleiðsla á plasti hefur 200-faldast síðan árið 1950 og við erum alltaf að nota plastið í styttri og styttri tíma. Plast endist ótrúlega lengi en við erum oft að nota það bara í nokkrar mínútur. Með aukinni framleiðslu og styttri líftíma er meira og meira af plasti að enda í náttúrunni og hafa neikvæð áhrif á lífríki.
Umhverfisáhrif
Vissir þú að
…á hverju ári enda um 8 milljón tonn af plasti í sjónum?
…plast er að finnast allstaðar í náttúrunni, í lífverum og fæðukeðjum og í drykkjarvatninu okkar?

Áhrif á lífríki
+Heilsuspillandi efni
+Fæðukeðjan
+Sóun á auðlindum
+Líftími plasts
+Samfélagsleg áhrif
Vissir þú að
…að plastmengun hefur verst áhrif á viðkvæma hópa?
…að strandhreinsunum fylgir töluverður kostnaður?

Kostnaður
+Áhrif á ímynd
+Plast og ójöfnuður
+Hvað er plast?
Plast er samheiti yfir mörg efnasambönd sem eiga það sameiginlegt að vera svokallaðar fjölliður sem íblöndunarefnum eða öðrum efnum hefur verið bætt við. Algengast er að plast sé framleitt úr jarðefnaeldsneyti en á undanförnum árum hefur framleiðsla á plasti úr öðrum efnum aukist, svo sem úr sykurreyr eða sterkju. Plast hverfur ekki eða eyðist við náttúrulegt niðurbrot, heldur brotnar það niður í smærri og smærri hluta og verður að endingu að svokölluðu örplasti.
Örplast
Örplast er heiti yfir smáar plastagnir sem eru minni en 5 mm að stærð.
Örplast sem sett er í vörur
+Örplast vegna niðurbrots stærri plasthluta
+Lífplast
Lífplast er samheiti yfir plasttegundir sem framleiddar eru úr lífmassa (e. bio-based), eru lífbrjótanlegar (e. biodegradable) eða bæði.
Þrír meginhópar lífplasts
+Kostir og gallar
+Skilgreiningar
+
Tegundir plasts eftir uppruna efnis og niðurbrjótanleika. Mynd birt með leyfi Sorpu.
Plastmerkingar
Plast er ekki bara plast heldur eru til margar mismunandi gerðir af því og til að ná fram ákjósanlegum eiginleikum eins og mýkt, endingu, hörku og að það brenni síður er ýmsum efnum bætt út í það.
Þríhyrningarnir 7
Plast er oft einkennt með þríhyrning með tölu inn í sem endurspeglar tegund fjölliðu.

| Númer | Skammstöfun | Heiti | Dæmi | Endurvinnsla |
| 1 | PET | Polyethylen terephthalat | Gosflöskur, flíspeysur | Hentar vel til endurvinnslu |
| 2 | HDPE | Polyethylen – High Density (HDPE) | Umbúðir fyrir snyrtivörur | Hentar vel til endurvinnslu |
| 3 | PVC | Polyvinylchlorid | Leikföng, regnföt | Hentar illa til endurvinnslu |
| 4 | LDPE | Polyethylen – Low Density (LDPE) | Plastpokar | Hentar vel til endurvinnslu |
| 5 | PP | Polypropylen | Skyrdósir, bílar og gólfteppi | Hentar vel til endurvinnslu |
| 6 | PS | Polystyren | Frauðplast | Hentar misvel til endurvinnslu |
| 7 | Annað/Other | Allt annað plast, til dæmis lífplast, ABS, EVA, nylon | Lego kubbar, öryggisgler, lífbrjótanleg djúsglös | Hentar misvel til endurvinnslu |
Áhugaverðar tölur
Á Íslandi er magn plastumbúða sem hver íbúi losar sig við um 51,2 kg á hverju ári eða alls um 19.300 tonn. Þegar við tölum um plastumbúðir er átt við allar umbúðir úr plasti sem tengjast lífi einstaklings, heimili, skóla og vinnu. Endurvinnsla á plastumbúðum á Íslandi síðustu ár er í kringum 25-30%, en inni í þeirri tölu er endurvinnsla drykkjavöruumbúða með skilagjaldi (85% endurunnið), heyrúlluplasts (60-70% endurunnið) og annarra umbúða úr plasti (10-15% endurunnið). Tölfræði um endurvinnslu umbúða er einnig að finna á síðu Umhverfis- og orkustofnunar, úrgangur.is.
Ekki eru til góðar heildartölur fyrir annað plast sem ekki er skilgreint sem umbúðir og er til dæmis í raftækjum, leikföngum, húsgögnum og slíku. Svo þær tölur vantar hér.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





