Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Reglur um plast fyrir fyrirtæki

Leiðbeiningar fyrir fyrirtæki

Regluverk um einnota plastvörur

Mikil áhersla hefur verið á að draga úr notkun á einnota plasti. Ástæðurnar fyrir þessu eru hversu mikið magn einnota plastumbúða sem við erum að nota, hversu stuttur líftími þeirra er og hvað það finnst mikið af einnota plasti á ströndum og í lífríki sjávar. Til að takast á við þessi vandamál hafa íslensk stjórnvöld sett reglur sem setja einnota plastvörum ýmis takmörk.

Fyrir svör tengd tilefni lagasetninganna og markmiðum er bent á spurt og svarað á vef stjórnarráðsins fyrir einnota plastvörur og bann við afhendingu á burðarpokum úr plasti.

Fleiri lagaákvæði gilda um plast en fjallað er um hér. Hér verður aðeins fjallað um þau lagaákvæði sem hafa þegar verið innleidd með breytingum á lögum 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Breytingarnar tóku gildi 2021 og hafa það að markmiði að takmarka sölu og afhendingu á þeim einnota plastvörum sem algengast er að finnist sem rusl á Evrópskum ströndum.

Ákvæðin eru ekki almenn fyrir allt plast, heldur gilda bara um tilteknar einnota plastvörur.

Tilskipun

Lagaákvæðin byggja meðal annars á tilskipun ESB sem setur einnota plastvörum ýmis takmörk

Sjá nánar

Leiðbeiningar

Eftirfarandi leiðbeiningar ESB eru hafðar til hliðsjónar við eftirlit með ákvæðum laganna.

Sjá nánar

Hvað er plast?

Skilgreiningin á plasti er mun víðtækari en margir gera sér grein fyrir. Vegna þessa geta jafnvel vörur sem eru merktar sérstaklega af söluaðila sem plastlausar fallið undir bannið. Við könnumst öll við hefðbundna plastbolla en það er mögulega erfiðara að átta sig á því að pappírsbollar með plastfilmu geta líka fallið undir ákvæði laganna. Einnig er mikilvægt að átta sig á því að allt lífplast er líka plast.

Hvernig er plast skilgreint?

+

Er lífplast líka plast?

+

1% – 100% plast

+
Spói

Mismunandi gerðir af plasti

Allt sem tiltekið er á myndinni er dæmi um plast. Lífbrjótanleg efni og efni af lífrænum uppruna geta líka verið plast.

Dæmi um plastvörur í skilningi laganna

Lögin gilda um vörur sem eru að hluta til úr plasti eða að öllu leyti

Image
Image
Image
Image

Pappírsbolli með plasthúð

Pappírsílát með plasthúð

Pappírsdiskur með plasthúð

Lífplast, til dæmis PLA

Fyrir sölustaði

Lagaákvæðin að neðan eiga fyrst og fremst við um sölustaði, svo sem matvöruverslanir, skyndibitastaði, veitingastaði, bakarí, bari, mötuneyti, veisluþjónustur, viðburðafyrirtæki, og matarþjónustur.

Skylda að rukka fyrir einnota ílát úr plasti

Hvað má ekki lengur gefa ókeypis?

+

Hvar þarf gjaldið að koma fram?

+

Hvenær þarf að taka gjald fyrir umbúðir?

+

Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi sem eru bútuð niður til að skýra hvort endurgjaldskrafan eigi við eða ekki. Hægt er að finna fleiri dæmi á síðu 16 og 20 leiðbeiningum ESB.

UmbúðirPlastEinnotaÆtlað til neyslu á staðnum (sölustað eða annarstaðar)Ætlað til neyslu beint úr íláti án frekari tilreiðsluAlla jafna neytt úr ílátinuNiðurstaða
Box fyrir heitan matÚr plasti, lífplasti eða pappa með plasthúð eða plastlokiJáJáJáJáEndurgjaldskrafa
Box fyrir kaldan matÚr plasti, lífplasti eða pappa með plasthúð eða plastlokiJáJáJáJáEndurgjaldskrafa
Brauðpokar /langlokupokarÚr sveigjanlegu efni úr plasti, með plasthúð eða úr pappa með plastgluggiJáJáJáJáEndurgjaldskrafa
FrönskupokarMeð plasthúðJáJáJáJáEndurgjaldskrafa
Bréf til að vefja um hamborgaraBréf með plasthúðJáJáJáJáEndurgjaldskrafa
KokteilsósaÍ boxi úr plasti, forpökkuð af framleiðandaJá, í einstaklingsumbúðumJáJáJáEndurgjaldskrafa
KokteilsósaSeld í plastflösku á hillu í matvörubúðNei, í henni eru margir skammtarNei, ætlað til heimilisnotaJá, það er hægt að borða hana beintNei, hún er sett á mismunandi matÞarf ekki að taka gjald fyrir plastumbúðirnar

Dæmi um einnota vörur sem þarf að rukka fyrir

Image
Image
Image

Matarílat úr plasti

Bollar og glös, þ.m.t. lok

Pappírsílát með plasthúð

Dæmi um afhendingu á sölustað vara

Image
Image

Heimsending frá netverslun

Kaffi tekið með í götumáli

Lausnir vegna endurgjaldsskyldu

Í stað þess að setja gjald á einnota plastílát er hægt að nýta tækifærið og innleiða hringrásar hugsun. Kannski ætti frekar að líta á glös, bolla og matarílát sem þjónustu í staðinn fyrir einnota vöru?

Einnig er mikilvægt að matsölustaðir styðji hringrásina með því að auðvelda neytendum að fá mat og drykk afhent í eigið ílát.

Sleppa öllu óþarfa

+

Hvað felst í því að breyta einnota vörum í þjónustu?

+

Leyfa neytendum að koma með eigið ílát

+

Færa staðsetningu einnota vara

+

Skipta út einnota fyrir einnota

+

Leiðbeiningar

Leiðbeiningar MAST um matvæli afhent í ílát viðskiptavina

Sjá nánar

Image

Bann við afhendingu á burðarpokum úr plasti

Frá og með 1. janúar 2021 er verslunum óheimilt að afhenda burðarpoka úr plasti á sölustöðum vara. Ekki skiptir máli hvort það er með eða án gjalds. Til að geta framfylgt banninu er því gagnlegt að hafa skilning á því hvað plast er, hvað burðarpoki er og hvað er átt við með afhendingu á sölustað vara. Einnig eru hér hugmyndir að lausnum, og þær flokkaðar eftir umhverfislegum ávinningi þeirra.

Hvað er plast?

+

Hvað er burðarpoki úr plast?

+

Hvað er afhending á sölustað vara?

+

Mismunandi pokar

Hefðbundnir plastpokar, maíspokar, lífplastpokar og pokar úr óofnu polýprópelíni er allt dæmi um poka sem bannað er að afhenda á sölustað vara.

Image
Image
Image

Hefðbundinn plastpoki

Lífbrjótanlegur maíspoki

Óofinn polýprópelin poki

Lausnir vegna burðarpoka

Verslanir geta farið mismunandi leiðir við að tryggja eftirfylgni laganna. Umhverfis- og orkustofnun hefur sett saman nokkrar hugmyndir að lausnum sem hefur verið raðað eftir umhverfislegum ávinningi. Það er hægt að líta á bannið sem tækifæri til þess að æfa sig í hringrásar hugsunarhætti með því að leita leiða til að draga úr auðlindanotkun. Hringrásar hugsunarháttur veltir upp áleitnum spurningum um burðarpoka. Kannski ætti frekar að líta á burðarpoka sem þjónustu í staðinn fyrir einnota vöru? Afhverju ekki að lána viðskiptavinum burðarpoka í staðinn fyrir að afhenda þeim þá?

Deila

+

Gera við

+

Endurnota

+

Endurframleiðsla

+

Endurvinna

+

Minnka þægindin við einnota

+

Skipta út einnota fyrir einnota

+

Forgangsraða hringrásarlausnum

Hringrásarhagkerfið er hagkerfi þar sem leitast er við að draga úr auðlindanotkun með að koma í veg fyrir að auðlindir verði að úrgangi með því að tryggja að hægt sé að viðhalda verðmætum auðlinda eins lengi og mögulegt er. Það er hægt að líta á bannið sem tækifæri til þess að æfa sig í þessum hugsunarhætti.

Image

Fyrir innflutning og framleiðslu

Lagaákvæðin að neðan eiga fyrst og fremst við um framleiðendur, innflutningsaðila, birgja og innkaupastjóra. Verslanir geta farið mismunandi leiðir við að tryggja eftirfylgni laganna. Umhverfis- og orkustofnun hefur sett saman nokkrar hugmyndir að lausnum sem hefur verið raðað eftir umhverfislegum ávinningi.

Bannaðar einnota plastvörur

Hvað felst í banninu við að setja á markað?

+

Einnota vörur sem verður bannað að setja á markað innihaldi þær plast

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Lausnir vegna banns á einnota plastvörum

Það er hægt að líta á bannið við að setja áðurnefndar einnota plastvörur á markað til þess að æfa sig í hringrásar hugsunarhætti. Kannski ætti frekar að líta á kaffimál, matarílát og hnífapör sem þjónustu í staðinn fyrir einnota vöru? Önnur lausn er að sleppa öllum óþarfa.

Breyta einnota vörum í þjónustu

+

Sleppa öllum óþarfa

+

Selja margnota vörur í stað einnota

+

Skipta út einnota fyrir einnota

+

Margnota vörur í stað einnota

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Einnota vörur sem eru ekki úr plasti

Image
Image
Image
Image
Image
Image

Samsetning einnota plastflaskna

Hvað felst í lagaákvæðunum um samsetningu einnota plastflaskna?

Í tilskipun Evrópusambandsins er kveðið á um að einnota plastflöskur fyrir drykkjarvörur sem settar eru á markað skulu vera að lágmarki 25% úr endurunnu plasti árið 2025. Árið 2030 skulu flöskurnar vera að lágmarki 30% úr endurunnu plasti. Nánar verður kveðið á um samsetningu á einnota plastflöskum í reglugerð ráðherra. Þó að reglugerðin sé ekki enn komin út er vitað að hún fylgir markmiðum Evrópusambandsins.

Lausnir fyrir einnota plastflöskur

Áreiðanlegt og endurvinnanlegt plast

+

"Grænþvegið" endurunnið plast

+

Merkingarskylda

Sumar einnota vörur ber að merkja sérstaklega innihaldi þær plast.

Hvað felst í merkingarskyldunni?

+

Lausnir vegna merkingarskyldu

Skipta út einnota fyrir fjölnota

+

Merkja með plast upplýsingum OG flokkunarleiðbeiningum

+

Rugla neytendur í ríminu

+

Fjölnota vörur sem hægt er að nota í stað einnota

Image
Image
Image
Image
Image
Image

Vörur sem þarf að merkja sérstaklega innihaldi þær plast

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Merkingarnar á íslensku

Hér er hægt að hlaða niður merkingunum á íslensku

Sjá nánar (ZIP, 26,4 MB)

Image
Image
Image
Image
Image
Image

Hvað fellur fyrir utan lögin?

Allar margnota vörur, hvort sem þær eru úr plasti eður ei.

Margnota vörur

+

Umbúðir eða matarílát?

+

Nýsköpun

Sumar lausnir eru enn ekki til, en geta orðið til! Hægt er að nýta sér lögin um plast sem tækifæri til að skapa nýjar lausnir.

Nýsköpunarlausnir

+

Hringræn þjónusta

+

Vörur án plasts

+

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800