Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Raftæki

Það er til mikils að vinna að kaupa færri og vandaðari raftæki, nota þau lengur og skila þeim á endurvinnslustöðvar svo hægt sé að koma verðmætum efnum aftur í hringrásina.

„ 77% Evrópubúa telja sig persónulega bera ábyrgð á að bregðast við til að takmarka loftslagsbreytingar samkvæmt könnun um græn umskipti frá október 2022“

Oft er hagkvæmara að fleygja vörum sem hægt er að gera við og því er þeim oft hent þó það sé í raun ótímabært. Þetta leiðir árlega til 35 milljóna tonna af úrgangi, 30 milljóna tonna af óþarfa notkun auðlinda og rúmlega 260 milljóna tonna af losun gróðurhúsalofttegunda í ESB. Jafnframt er tap neytenda af því að velja endurnýjun í stað viðgerðar metið á tæpa 12 milljarða evra á ári.

Hvað eru raftæki?

Skilgreiningin á raf- og rafeindatækjum í íslenskum lögum er svohljóðandi: búnaður sem þarf rafstraum eða rafsegulsvið til að geta starfað á réttan hátt og búnaður til að framleiða, flytja og mæla slíkan rafstraum og rafsegulsvið og er hannaður til notkunar við rafspennu sem fer ekki yfir 1000 volt þegar um er að ræða riðstraum og ekki yfir 1500 volt þegar um er að ræða jafnstraum, þ.m.t. allir íhlutir, undireiningar og aukahlutir sem eru hluti af búnaðinum.

Ísskápar, myndavélar, fartölvur, snjallsímar, blikkskór, kynlífstæki, rafknúin leikföng, snjallúr, heyrnatól, hrærivélar, borvélar, rafrettur, saumavélar og þvottavélar eru allt dæmi um raftæki!

Höldum verðmætum auðlindum í hringrás

Raftæki eru orðin órjúfanlegur hluti af daglegu lífi okkar. Notkun þeirra hefur gjörbylt því hvernig við vinnum, lærum, skemmtum okkur og eigum í samskiptum, og gert líf okkar auðveldara og þægilegra en nokkru sinni fyrr.

Raftæki eru oftar en ekki búin til úr endingargóðum efnum eins og plasti og málmum sem margir hverjir eru auk þess sjaldgæfir og verðmætir. Þrátt fyrir það eru flest raftæki notuð í tiltölulega stuttan tíma þar sem þau teljast ekki lengur verðmæt eða nytsamleg.

Raftækjaúrgangur er sá straumur heimilisúrgangs sem vex hvað hraðast á heimsvísu og lítill hluti þessara tækja skilar sér til endurvinnslu. Það er því til mikils að vinna að koma raftækjum úr hinu línulega hagkerfi yfir í hringrásarhagkerfi.

Hvað er til ráða?

Það er margt sem við getum gert til að vera partur af lausninni. Það mikilvægasta er að draga úr neyslu og kaupa einungis það sem við þurfum á sama tíma og við aukum líftíma þeirra raftækja sem við eigum.

Kaupa minna

+

Nota lengur

+

Kaupa notað

+

Koma í áframhaldandi notkun

+

Skila á réttan stað

+

Hvers vegna geta raftæki verið vandamál?

Heimsframleiðsla á raftækjum hefur aukist hratt á undanförnum áratugum og er viðbúið að eftirspurnin haldi áfram að aukast í takt við nýja strauma, tísku og tækni. Framþróun í gervigreind, hlutanet (e. internet of things) og mannfjöldaaukning spila þar stóran þátt. Á sama tíma sjáum við að líftími raftækjanna styttist, bæði vegna hraðrar tækniþróunar en einnig vegna síbreytilegra tískustrauma sem hafa áhrif á kröfur neytenda.

Hvað eru stjórnvöld að gera?

Á Íslandi er aðkoma Umhverfis- og orkustofnunar að raftækjum í gegnum markaðseftirlit sem snýr að því hvort raftæki, batterí og rafgeymar sé tunnumerkt. Umhverfis- og orkustofnun heldur einnig skrá með upplýsingum um alla framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja og hefur eftirlit með þeim.
Nánar um raf- og rafeindatæki og rafhlöður og rafgeyma á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Hlutverk Úrvinnslusjóðs er að safna upplýsingum um magn raf- og rafeindatækja sem sett eru á markað, um magn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem safnað er og ráðstöfun hans og skila þeim til Umhverfis- og orkustofnunar fyrir 1. apríl ár hvert fyrir undangengið ár. Einnig skal Úrvinnslusjóður ná tölulegum markmiðum um undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, endurnýtingu, söfnun og förgun raf- og rafeindatækjaúrgangs.

Það helsta sem tengist raftækjum sem kemur frá framkvæmdastjórn ESB eru þeir fjórir pakkar úr Circular economy action plan EU sem nefndir eru hér að neðan.

Green claims - Grænar umhverfisfullyrðingar

+

Right to repair - Réttur til viðgerða

+

Eco-design for sustainable products (ESPR) - Visthönnun fyrir sjálfbærar vörur

+

Circular electronics initiative - Raftæki í hringrás

+

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800