Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Textíll

Verum partur af lausninni og ekki vandanum. Kaupum minna, kaupum notað, notum lengur, gerum við og endurvinnum meira!

„S íðan 2018 hafa 8% fleiri dregið úr einkaneyslu til að draga úr umhverfisáhrifum “

Þetta er niðurstaða umhverfiskönnunar Gallup árið 2021. Ætla má að stærsti hlutinn af umhverfisspori einkaneyslunnar sé textíll, en textíll er fjórði stærsti umhverfisþáttur einstaklinga á eftir húsnæði, samgöngum og matvælum.

Það er erfitt að ímynda sér lífið í heimi án textíls enda er textíll allt í kringum okkur. Það eru ekki bara fötin okkar heldur líka gólfteppin okkar, sófarnir, handklæði og svo mætti áfram telja. Föt veita okkur þægindi og skjól en þau eru einnig ákveðið tjáningarform.

Textíll er efni sem framleitt er úr þráðum af mismunandi uppruna svo sem ull, bómull og viskósa en einnig tilbúnum trefjum og plastefnum sem hægt er að spinna í þræði. Þráðurinn er síðan notaður til þess að búa til efni sem eru yfirleitt ofin, prjónuð eða unnin á annan hátt.

Efnin eru svo notuð í allskyns vörur; fatnað, skó, rúmföt, gluggatjöld, garn, gólfteppi, húsgagnaáklæði, bílsæti, handklæði og tjöld svo eitthvað sé nefnt. Við framleiðslu textíls er notað gríðarlegt magn af efnavöru til að ná fram ákveðnum eiginleikum eins og lit, áferð, mýkt og vatnsheldni.

Hvað er til ráða?

Það er margt sem við getum gert til að vera partur af lausninni. Það mikilvægasta er að draga úr neyslu þar sem innkaupin ráðast í dag að miklu leyti af löngun en ekki þörfum. Einnig eru til ýmis ráð til að auka líftíma fatnaðar og textíls sem samræmast hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins.

Kaupa minna

+

Nota lengur

+

Kaupa notað

+

Leigja

+

Koma í áframhaldandi notkun

+

Skila á réttan stað

+

Áhugaverðar tölur

150 skiptiMeðalfjöldi skipta sem hver flík er notuð á heimsvísu
20 kgHver Íslendingur losar sig við um það bil 20 kg af textíl á ári
9%Um 8-10 % losun GHL í heiminum er frá textíliðnaði

Frá árinu 2000 hefur framleiðsla á fötum nær tvöfaldast á sama tíma og þau enda sífellt hraðar í ruslinu. Sökina er að miklu leiti að finna í aukinni áherslu framleiðenda og kaupenda á skynditísku (e. fast fashion).

Skynditíska felur í sér framleiðslu á ódýrum flíkum í lágum gæðum sem unnar eru með sem minnstum fjárhagslegum tilkostnaði. Þá er félagslegur kostnaður auk umhverfiskostnaðar ekki tekinn inn í verðið og litlir hvatar fyrir almenning til að draga úr sóun sinni. Skynditíska hefur þau áhrif að meðalneysla á textíl á hvern einstakling hefur aukist verulega. Á sama tíma hefur nýtni dregist saman hratt og á heimsvísu hefur meðalfjöldi skipta sem hver flík er notuð dregist saman um fjórðung á árunum 2000-2015, frá um 200 skiptum í 150 skipti áður en hún endar í ruslinu.

Árið 2019 var áætlað að meðal Evrópubúinn kaupi um 26 kg af fatnaði og losi sig við um 11 kg árlega. Hér á landi er hins vegar talið að hver einstaklingur losi sig við um 15-23 kg af textíl árlega, sem er margfalt meira en meðal-jarðarbúi.

Þegar textílúrgangur á Íslandi er skoðaður hefur Umhverfisstofnun (nú Umhverfis- og orkustofnun) áætlað að um 60% (14kg/íbúa/ári) sé urðaður með blönduðum úrgangi. Rauði Krossinn tekur við um 40% (9kg/íbúa/ári) til endurnotkunar og endurvinnslu. Næstum allur notaður textíll sem safnast á Íslandi er sendur í flokkunarstöðvar erlendis þaðan sem honum er svo dreift til endursöluaðila eða komið í besta mögulega farveg. Til eru farvegir fyrir öll textílefni, ekki einungis heillegar flíkur, og því mikilvægt að neytendur skili öllu inn í sérsöfnun. Þetta á við um lök, götóttar nærbuxur, ofþvegin handklæði og svo mætti lengi telja.

Gæði notaðs textíls sem fluttur er frá Íslandi eru almennt mikil en mikilvægt er að textíl sé skilað hreinum og í lokuðum plastpokum til að hann mengist ekki af öðrum úrgangi.

Af hverju getur textíll verið vandamál?

Framleiðsla á textíl hefur í för með sér neikvæð áhrif á umhverfi og samfélag. Þessi áhrif magnast samhliða því sem við kaupum meira.

Umhverfisáhrif

+

Samfélagsleg áhrif

+

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800