Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Textíll og jafnrétti

Byrgðar af neikvæðum áhrifum textíls eru bornar af konum og fátækari þjóðum. Við getum breytt því!

„Konur eru meira áberandi á báðum endum virðiskeðju textíls“

Í upphafi virðiskeðjunnar sjáum við að mikill meirihluti þeirra sem starfa við framleiðslu textíls eru konur. Vinnuaðstæður eru í mörgum tilfellum óboðlegar, aðstæður heilsuspillandi og margar verða fyrir kynferðislegri áreitni (UNEP, 2023).

Við vörunum taka svo konur, en þær sjá í mun meira mæli um textilinnkaup fyrir heimilin en karlar. Samkvæmt spurningakönnun sem sem gerð var á vegum Umhverfisstofnunar (nú Umhverfis- og orkustofnunar) árið 2021 segjast 81% kvenna að mestu eða öllu leyti sjá um kaup á textíl fyrir íslensk heimili borið saman við 21% karla. Umsýsla með textíl veldur töluverðu álagi ofan á önnur heimilisstörf sem konur eru líklegri til að sinna en karlar. Þær eru því almennt meðvitaðri um ástandið á fatnaði og öðrum textíl á heimilinu, hvenær börnin eru vaxin upp úr fötum, hvenær annan textíl vantar, hvenær er orðið nauðsynlegt að þvo, gera við, flokka og fara með í endurvinnslu.

Þannig það má segja að textíllinn hafi íþyngjandi áhrif á konur á báðum endum virðiskeðjunnar.

Textíll og misskipting í heiminum

Þrýstingur á að halda framleiðslukostnaði í lágmarki hefur haft það í för með sér að textíl framleiðsla færist frá ríkari löndum til fátækari. Þar er oft á tíðum minna um regluverk til verndar starfsfólks og umhverfis. Hin svokallaða skynditíska hefur gert ástandið enn verra, enda fylgir henni krafa um mikinn vinnuhraða og lágt vöruverð. Vinnuaðstæður eru í mörgum tilfellum óboðlegar og aðstæður heilsuspillandi. Verkafólki sem starfar í iðnaðinum er hættara við kynferðislegu ofbeldi, sér í lagi konum. Ástandið er sérstaklega alvarlegt í frumframleiðslu textílsins, og þá verst í framleiðslu bómullar. Fátækari þjóðir eru því að ganga á auðlindir sínar, og andlega og líkamlega heilsu borgara sinna sem starfa í textíliðnaði til þess að fólk frá ríkari þjóðum geti keypt sér meira af textíl á lægra verði. Að auki hefur iðnaðurinn í heild sinni neikvæð áhrif á loftslagið og vistkerfi jarðar, en það bitnar ekki síst á efna- og valdaminni hópum í samfélaginu.

70% þeirra sem starfa við framleiðslu textíls eru konur

Vinnuaðstæður eru í mörgum tilfellum óboðlegar, aðstæður heilsuspillandi og margar verða fyrir kynferðislegri áreitni.

Buxur án bakgrunns

Textíll og kynin – kaup og umsýsla í daglegu lífi

20 mín - Meðal notkunartími plastpoka

69% Hlutfall kvenna sem er sammála því að þær kaupi einungis þau föt og klæði sem vantar hverju sinni

Losun

87% Hlutfall karla sem er sammála því að þeir kaupi einungis þau föt og klæði sem vantar hverju sinni

Samkvæmt rannsóknum eru konur líklegri en karlar til að hafa meiri áhuga á tísku, eru uppteknari af nýjustu straumum, líklegri til þess að versla sér til gamans og eyða meiri peningum og tíma í föt. Að einhverju leyti skýrist munurinn á því að kauphvatar kvenna eru aðrir en karla, en þar að auki herja markaðsöflin í meira mæli á konur með óraunhæfum útlitskröfum í því skyni að grafa undan ánægju þeirra með sjálfar sig til að fá þær til að kaupa meira (sjá til dæmis rannsókn Dittmar o.fl., 2004). Hér á landi má nefna að konur eru líklegri til að segja að þær losi sig við föt vegna þess að þau passa þeim ekki lengur, þær eru orðnar leiðar á þeim, þau dottin úr tísku eða keypt í fljótfærni. Þetta væri hægt að túlka sem svo að flíkur séu síður gerðar til þess að aðlagast breytingum á líkamsformi kvenna í gegnum lífsleiðina ásamt því að markaðsöflin séu öflugri í að telja konum trú um að flíkin eigi ekki við lengur, líkt og kenningar og rannsóknir benda til.

Bolur

97% Hlutfall kvenna sem fer með föt í fatagáma þegar þær losa sig við þau

20 mín - Meðal notkunartími plastpoka

90% Hlutfall karla sem fer með föt í fatagám þegar þeir losa sig við þau

Jafnframt hefur verið bent á að konur bera meira af hugrænni ábyrgð (e. mental load) á ólaunuðum störfum heimilislífsins en makinn. Þær eru því almennt meðvitaðri um ástandið á fatnaði og öðrum textíl á heimilinu, hvenær börnin eru vaxin upp úr fötum, hvenær annan textíl vantar, hvenær er orðið nauðsynlegt að þvo, gera við og svo framvegis. Áðurnefnd spurningakönnun um textíl og jafnrétti á vegum Umhverfisstofnunar (nú Umhverfis- og orkustofnunar) gefur vísbendingar um sama mynstur hér enda segjast konur sjá um textíl- og fatainnkaup að mestu eða öllu leyti á íslenskum heimilum.

20 mín - Meðal notkunartími plastpoka

81% Hlutfall kvenna sem segist sjá um fata- og textílkaup fyrir heimilið

Bolur

21% Hlutfall karla sem segist sjá um fata- og textílkaup fyrir heimilið

Bent hefur verið á að þessi umsýsla með textíl veldur töluverðu álagi ofan á önnur heimilisstörf sem konur eru líklegri til að sinna en karlar. En þrátt fyrir sífellt aukna atvinnuþátttöku kvenna hefur hlutverk þeirra innan heimilis breyst lítið undanfarna áratugi og konur eru ennþá virkastar í umönnun fjölskyldunnar og bera mesta ábyrgð á heimili og börnum (Carrigan og Szmigin, 2006). Þannig það má segja að textíllinn hafi íþyngjandi áhrif á konur á báðum endum virðiskeðjunnar.

Bolur

49% Hlutfall kvenna sem lagar eða lætur laga textíl í stað þess að kaupa nýtt

20 mín - Meðal notkunartími plastpoka

24% Hlutfall karla sem lagar eða lætur laga textíl í stað þess að kaupa nýtt

Hvað er til ráða?

Lausnir eru mismunandi eftir því hver á í hlut, en það skiptir máli að allir aðilar sem hafa áhrif á textíliðnaðinn taki ábyrgð og vinni að sama markmiði. Hvort sem um er að ræða hönnuði, framleiðendur, neytendur eða aðra sem koma þarna á milli.

Ábyrgð stjórnvalda

+

Ábyrgð fyrirtækja, birgja, innkaupastjóra, hönnuða og framleiðenda

+

Ábyrgð neytenda

+

Ábyrg verkaskipting

+

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800