Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Um verkefnið

Stefnan 'Saman gegn sóun' leggur áherslu á nægjusemi, betri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs. Unnið er að nýrri stefnu í úrgangsforvörnum um þessar mundir og er hún áætluð í útgáfu seinnihluta árs 2025.

„Sjö af hverjum tíu vilja breyta hegðun sinni til að minnka umhverfisáhrif sín“

Lang flestir vilja leggja sitt af mörkum til að draga úr sóun og neikvæðum umhverfisáhrifum. Þetta er niðurstaðan úr umhverfiskönnun Gallups 2021, en þar sögðust flestir vilja breyta hegðun sinni mjög mikið eða frekar mikið til að minnka áhrif sín á umhverfið. Saman gegn sóun vill aðstoða fólk við að ná því markmiði.

Um verkefnið

Saman gegn sóun er almenn stefna umhverfis, orku- og loftslagsráðherra um úrgangsforvarnir sem gildir frá árinu 2016 til 2027. Umhverfis- og orkustofnun fer með umsjón með Saman gegn sóun.

Í samræmi við hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins er sett í forgang að draga úr myndun úrgangs og stuðla þannig að minni eftirspurn eftir náttúruauðlindum. Í stefnunni er lögð áhersla á nægjusemi, betri nýtni og minni sóun ásamt því að auka fræðslu til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.

Markmið stefnunnar

+

Aðgerðir stefnunnar

+

Stefnan

Hér er hægt að nálgast stefnuna í heild sinni. Stefnan er sett með vísan í 2. mgr. 5. gr. laga nr.55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Sjá nánar
Saman gegn sóun

Stöðumat og valkostir – unnið að nýrri stefnu

Unnið er að mótun nýrrar stefnu um þessar mundir. Sem hluti af stefnumótunarferli stjórnvalda er grænbók (stöðumat og valkostir) gefin út, það er greining á stöðu úrgangsforvarna á Íslandi. Grænbók hefur farið í gegn um víðtækt samráð við almenning og hagaðila. Eftir útgáfu var kallað eftir umsögnum á samráðsgátt stjórnvalda, uppfærða grænbók með umsögnum úr samráði má finna hér að neðan.

Grænbók

Hér er hægt að nálgast stöðumat og valkosti í úrgangsforvörnum, greiningu á stöðu úrgangsforvarna á Íslandi 2025.

Sjá nánar (PDF, 2,0 MB)

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800