Spurt og svarað
Hér að neðan má finna svör við þeim spurningum sem ekki tókst að svara á opnum fyrirlestri um ábyrga notkun plasts í atvinnulífinu þann 13. október 2022
Af hverju var mælt sérstaklega gegn lífplasti nema það sé ekki lífbrjótanlegt en Marea sem er flott fyrirtæki sett fram með þaraplast, einnig matvörubúð lofsömuð fyrir að nota ekkert hefðbundið plast og er að nota niðurbrjótanlegt plast? Er hægt að útskýra þetta misræmi?
+Góðan daginn. Kannski aðeins út fyrir bara plast, en fyrir úrgang almennt. Þegar ný lög um flokkun taka gildi um áramótin, hvaða áhrif hefur það á fyrirtæki. Er fyrirtækjum skylt að flokka og hvar er hægt að finna auðlesanlegar leiðbeiningar um það? þ.e. lögin tala bara um heimilisúrgang, en ekki beint fjallað um fyrirtæki.
+Nú er dæmi um að fyrirtæki eru að sérsafna þessu óvinsæla plasti í t.d. heilu pressugámana. En staðan er sú að það plast kemst ekki í endurvinnslu vegna þess að það er ekki verið að safna nægilega miklu og vantar staði þar sem fyrirtæki geta tekið sig saman og safnað þessu óvinsæla á einhverja staði. Hvorki Pure North né Plastplan vilja taka við þessum "óvinsælu" plastefnum. Svo að það er ekki bara lífplast sem endar í urðun eða brennslu. Hvað er til ráða?
+Er það ekki rétt að árið 2025 þarf allt plast að innihalda amk 25% PCR?
+Þú ert einnig að tala um PLA sem er ekki hægt að bræða hér heima þegar kemur að lífplasti. Það er mjög ódýrt efni og þess vegna er verið að nota það. Væri ekki ábyrgara að gera skil á því að PLA er ekki ákjósanlegt lífplast EN alls ekki eins lausnin. Samanber Marea ofl.
+Verður urgangur.is líka á ensku?
+Afhverju er enn verið að leyfa PVC?
+Vitiði hvort það þurfi að greiða fyrir notkun á þessum Fenúr merkingum á umbúðum? Er að spyrja fyrir hönd fyrirtækis.
+Þegar skipt er yfir úr plastumbúðum í pappaumbúðir þá er pappinn oft húðaður með fráhrindandi efni. Eru þau efni ekki oft þannig að þau losna út í matvæli? Hefur það verðið skoðað.
+Hvernig í heiminum stendur á því að við á Íslandi getum ekki bara haft eina lausn fyrir allt landið... við erum nú ekki svo mörg!
+Má samræma umbúðir sem notaðar eru utan um ferskar sjávarafurðir sem fluttar eru erlendis og gætu verið endurunnar þar?
+Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





