Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Hættumerki

Hættumerkin níu á efnavörum

Hættumerki á efnavörum

Á hverju ári valda efni sem notuð eru á heimilum fjölda slysa. Hægt er að koma í veg fyrir þau með því að kynna sér merkingar á vörum sem innihalda hættuleg efni. Þar má meðal annars finna upplýsingar um eðli hættunnar og varúðarráðstafanir ef eitthvað fer úrskeiðis.

Hættumerkin níu eru notuð til að vara við hættu af völdum efna og byggja á alþjóðlegu, samræmdu kerfi.

Fimm góð ráð

1

Geymdu hættuleg efni alltaf í upprunalegum umbúðum.

2

Fylgdu leiðbeiningum á merkimiðanum.

3

Varastu að hættuleg efni komist í snertingu við húð, augu eða lungu.

4

Geymdu hættumerktar vörur þar sem börn ná ekki til.

5

Hugsaðu um umhverfið áður en þú fargar hættumerktum vörum.

Hættumerkin níu

Opnaðu hvert merki til að sjá dæmi um vörur, varúðarráðstafanir og hættuna.

Hættumerki: Sprengifimt

Sprengifimt

Sprengifim efni og sprengifimir hlutir.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Dínamít, skotfæri, svart púður, skoteldar og flugeldavörur.
Varúðarráðstafanir
Haldið frá hita og opnum eldi og reykið ekki nálægt þessum vörum. Mælt er með notkun hlífðargleraugna. Haldið fjarlægð og kynnið ykkur reglur um geymslu og förgun.
Hætta
Sprenging með höggbylgju og vörpun brota. Getur valdið íkveikju í öðrum efnum.
Hættumerki: Eldfimt

Eldfimt

Eldfimir vökvar og gufur frá þeim, gas, úðaefni og þurrefni.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Eldsneyti á vélar, eldsneyti á tæki til matseldar, etanól, naglalakkseyðir, flöskur með fljótandi gasi og úðabrúsar með fljótandi drifgasi.
Varúðarráðstafanir
Forðist íkveikjuvalda, hita og loga. Reykið ekki nálægt þessum vörum. Haldið umbúðum vel lokuðum og geymið á köldum og vel loftræstum stað. Mælt er með hlífðarhönskum og hlífðargleraugum ef hætta er á að efni slettist í augu.
Hætta
Í þessum vörum kviknar ef þær komast í snertingu við opinn eld, neista eða hita. Sumar vörur gefa frá sér eldfimt gas í snertingu við vatn eða geta valdið sjálfsíkveikju í lofti. Ef eldur kviknar skal slökkva hann með dufti, froðu, koltvísýringi, eldteppi eða vatnsúða, ekki beinni vatnsbunu, því þá breiðist eldurinn út.
Hættumerki: Eldnærandi

Eldnærandi

Efni sem valda eða stuðla að bruna annarra efna.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Sótthreinsitöflur og -vökvar, bleikiefni, súrefnisgas.
Varúðarráðstafanir
Forðist hita og loga. Reykið ekki nálægt þessum vörum. Geymið fjarri eldfimum vörum. Mælt er með hlífðarhönskum og hlífðargleraugum ef hætta er á að efni slettist í augu.
Hætta
Eldnærandi efni eru ekki endilega eldfim sjálf en geta stuðlað að eldi og magnað hann. Ef eldur kviknar skal slökkva hann með dufti, froðu, koltvísýringi, eldteppi eða vatnsúða, ekki beinni vatnsbunu.
Hættumerki: Gas undir þrýstingi

Gas undir þrýstingi

Gas í umbúðum undir þrýstingi (2 bör eða meira).

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Flöskur með fljótandi gasi, logsuðugas, súrefnishylki.
Varúðarráðstafanir
Geymið á vel loftræstum stað sem er varinn gegn sólarljósi og hita. Gangið úr skugga um að allar slöngur og tengingar séu þéttar. Notið hlífðarbúnað.
Hætta
Gas undir þrýstingi getur sprungið við hitun. Hættan er sýnd á merkimiðanum og getur verið mjög breytileg eftir því hvort gasið er eldfimt, eldnærandi, eitrað eða ætandi. Gashylki geta einnig innihaldið kælt gas sem getur valdið kali.
Hættumerki: Ætandi

Ætandi

Efni sem valda húðætingu, alvarlegum augnskaða eða tæra málm.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Ediksýra, saltsýra, ammóníak, stíflueyðir, salernishreinsir.
Varúðarráðstafanir
Notið hlífðarhanska og hlífðargleraugu. Forðist inntöku, innöndun og snertingu við húð og augu.
Hætta
Innöndun gufu eða úða er ætandi fyrir öndunarveg og getur valdið brunatilfinningu, hósta, öndunarerfiðleikum og brjóstverkjum. Inntaka getur valdið bruna í munni, vélinda og maga. Varan er húðætandi og getur valdið roða, blöðrum og brunasárum. Komist efnið í augu er hætta á alvarlegum augnskaða og sjónmissi.
Hættumerki: Bráð eituráhrif

Bráð eituráhrif

Efni sem valda bráðum eituráhrifum við inntöku, snertingu við húð eða innöndun. Vörur með þessu merki geta valdið dauða.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Plöntuverndarvörur, útrýmingarefni, metanól, nikótínáfyllingar fyrir rafrettur.
Varúðarráðstafanir
Þessar vörur finnast yfirleitt ekki á heimilum heldur frekar á vinnustöðum. Til að kaupa þær þarf að vera orðinn 18 ára og þeir sem nota þær vegna vinnu sinnar þurfa notendaleyfi. Við notkun getur þurft öndunarbúnað, hlífðarhanska, hlífðargleraugu og sérstakan vinnufatnað. Geymið á læstum stað og fargið umbúðum og innihaldi samkvæmt gildandi reglum.
Hætta
Vörurnar eru eitraðar og geta verið banvænar við inntöku, í snertingu við húð eða við innöndun.
Hættumerki: Heilsuskaði

Heilsuskaði

Efni sem geta ert húð, augu eða öndunarveg, valdið ofnæmisviðbrögðum í húð, syfju eða svima. Geta verið skaðleg við inntöku, snertingu við húð og innöndun.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Efni til að fjarlægja útfellingar, salernishreinsir, þvottaefni, frostlögur og lím.
Varúðarráðstafanir
Eftir því hver hættan er hverju sinni er mælt með hlífðarhönskum og hlífðargleraugum. Forðist inntöku, innöndun og snertingu við húð og augu.
Hætta
Sumar vörurnar valda ertingu í öndunarvegi við innöndun og aðrar innihalda leysiefni sem valda syfju og svima. Gufur geta valdið höfuðverk og vímu. Inntaka getur verið hættuleg eða valdið óþægindum og ertingu í munni og maga. Sumar vörurnar geta valdið ofnæmisviðbrögðum eða ertingu í húð og augum.
Hættumerki: Alvarlegur heilsuskaði

Alvarlegur heilsuskaði

Efni sem geta valdið langvarandi áhrifum, til dæmis krabbameini, skaða á erfðaefni eða skertri frjósemi. Á einnig við um efni sem valda ofnæmi eða astma við innöndun, skaða ákveðin líffæri eða eru banvæn ef þau komast í öndunarveg við inntöku.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Terpentína, bensín, sellulósaþynnir, lampaolía og grillvökvi.
Varúðarráðstafanir
Forðist inntöku, innöndun og snertingu við húð og augu. Notið hlífðarhanska og hlífðargleraugu ef hætta er á að efnið slettist í augu. Fargið umbúðum og innihaldi samkvæmt gildandi reglum.
Hætta
Ofnæmisviðbrögð í öndunarvegi og öndunarerfiðleikar. Gufur geta valdið höfuðverk og vímu. Sumar vörur geta verið banvænar ef þeirra er neytt og þær komast í öndunarveg (efnalungnabólga). Snerting við sumar vörur getur valdið varanlegu heilsutjóni, til dæmis krabbameini og ófrjósemi.
Hættumerki: Hættulegt umhverfinu

Hættulegt umhverfinu

Efni sem eru hættuleg eða skaðleg umhverfinu.

Dæmi, varúð og hætta
Dæmi
Terpentína, bensín, plöntuverndarvörur, útrýmingarefni, viðarvörn, lökk og sumar límtegundir.
Varúðarráðstafanir
Forðist losun út í umhverfið. Hellið ekki í niðurföll nema varan sé sérstaklega ætluð til þess. Fargið innihaldi og umbúðum samkvæmt gildandi reglum.
Hætta
Þessar vörur geta verið eitraðar vatnalífverum og haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni.

Geymsla, förgun og óhöpp

Geymdu hættumerktar vörur þar sem börn ná ekki til og ekki nálægt matvælum, dýrafóðri, lyfjum eða álíka vörum. Þegar búið er að nota vöruna þarf að farga innihaldi og umbúðum í samræmi við reglur. Á merkimiða hættulegra efna eru ráðleggingar um viðbrögð við óhöppum og slysum.

Ef þú finnur fyrir óþægindum sem rekja má til vöru sem inniheldur hættuleg efni skaltu leita til læknis eða Eitrunarmiðstöðvar Landspítala. Gott ráð er að fara kerfisbundið í gegnum öll herbergi heimilisins og athuga hvar hættuleg efni og lyf eru geymd.

Eitrunarmiðstöð Landspítala: 543 2222

Hafðu umbúðir eða merkimiða vörunnar við höndina þegar þú hringir.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800