Koldíoxíð (CO₂)
Koldíoxíð (CO₂) er lofttegund sem finnst í náttúrunni og uppspretta hennar er bæði með náttúrulegum hætti og af manna völdum. Þetta er mikilvægasta gróðurhúsalofttegundin og styrkur koldíoxíðs er mismunandi eftir árstíðum og svæðum og oft meiri í þéttbýlum svæðum.
Styrkurinn er yfirleitt minni á sumrin vegna ljóstillífunar plantna en á veturnar hækkar hann vegna rotnunar lífrænna leifa. Þetta er líffræðilegt ferli sem maðurinn er farinn að hafa áhrif á með bruna jarðefnaeldsneytis, framleiðslu í orkuverum og iðnaði og breyttrar landnotkunar og eyðingu skóga. Við þetta losnar meira af koldíoxíði út í andrúmsloftið en eðlilegt er. Mis mikið af koldíoxíði fer út í andrúmsloftið með útblæstri bíla en magn þessara efna er háð stærð vélarinnar, snúningshraða, álagi, ástandi vélarinnar, gerð eldsneytis og fleira.
Koldíoxíð er mikilvægasta gróðurhúsalofttegundin.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins






