Unnið að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar. Þeir ættu að vera að fullu komnir upp innan skamms.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Breytingar á raforkulögum samþykktar - Gagnsæi og heiðarleiki á heildsöluorkumarkaði

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra til laga um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003. Frumvarpið mælir fyrir um tilteknar hátternisreglur í raforkuviðskiptum og eftirlit til að stuðla að gagnsæi og heiðarleika á heildsöluorkumarkaði. Tilgangur frumvarpsins er jafnframt að setja lagaramma um starfsemi viðskiptavettvanga raforku, lýsa hlutverki og skyldum þeirra sem fara með slíka starfsemi og kveða á um eftirlit Raforkueftirlitsins.

Framboð og eftirspurn myndar markaðsverð

Töluverð þróun hefur orðið á raforkuviðskiptum á íslenskum heildsöluorkumarkaði. Helsta þróunin snýr að því að samningssamband um kaup- og sölu á raforku kemst á með skipulögðum hætti á viðskiptavettvöngum raforku, þar sem pörun viðskipta, það er framboð og eftirspurn, myndar opinbert markaðsverð. Áður fyrr áttu viðskiptin sér stað milli tveggja samningsaðila, yfir borðið eða í gegnum viðskiptavef Landsvirkjunar.

Traust og trúverðugleiki

Frumvarpið sem nú er orðið að lögum, er mikilvægur liður í að tryggja traust og trúverðugleika markaðsaðila til markaðarins og að markaðsverð endurspegli raunverulegt framboð og eftirspurn, auk atburða í kerfinu hverju sinni.

Ákvæði frumvarpsins eiga sér meðal annars fyrirmynd í reglugerð ESB nr. 1227/2011 um heildstæðan og gagnsæjan heildsöluorkumarkað (REMIT), ásamt þeim breytingum sem orðið hafa á þeirri reglugerð með REMIT II.

Aukin verkefni fyrir Raforkueftirlitið

Raforkueftirlitið fer með eftirlit á raforkumarkaði en nýju raforkulögin fela í sér aukin verkefni. Raforkueftirlitinu ber nú einnig að gefa út leiðbeinandi tilmæli um túlkun á ákvæðum laganna (20. gr. a –i), sinna markaðseftirliti og gefa út leyfi fyrir starfsemi viðskiptavettvanga raforku á grundvelli 18. gr. a. raforkulaga.

Samráð við gerð laganna

Frumvarpið var unnið í samráði við Raforkueftirlitið og hefur það aðstoðað bæði ráðuneytið og Alþingi við meðferð málsins. Raforkueftirlitið hefur meðal annars veitt ráðuneytinu opinbera umsögn.

Raforkueftirlitið mun á næstu vikum verða ráðuneytinu til ráðgjafar og umsagnar við gerð reglugerða um 20. gr. a. – 20. gr. i. raforkulaga, og skipulagskröfum viðskiptavettvanga ásamt því að vinna leiðbeiningar um túlkun 20. gr. a. – 20. gr. i. í samráði við markaðsaðila.

Fleiri fréttir

Skoða
14. ágúst 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028-2023. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 30. september 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.
9. júlí 2026
Töluverður loftslagsábati með stuðningi Loftslags- og orkusjóðs 2025
Olíusparnaður vegna verkefna sem hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði árið 2025 nam um 23 milljónum lítra á ársgrundvelli að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins sem nú er komin út. Þá nam nettó raforkusparnaður vegna styrktra verkefna 59 GWst á ári, sem  samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla. Mikill árangur náðist í orkuskiptum og orkunýtni á þessu fyrsta heila starfsári Loftslags- og orkusjóðs og má, að því er segir í skýrslunni, áætla að sjóðurinn hafi stuðlað að olíu- og raforkusparnaði til 15 ára, sem má verðmeta til 93 milljarða króna á núvirði. Markaðsvirði olíu- og raforkusparnaðar vegna styrktra verkefna er metið rúmlega áttfalt á við kostnað sjóðsins. Þar af er eru samkeppnisverkefnin metin langsamlegast arðbærust, en ábati vegna þeirra er metinn um 24-faldur á við kostnað sjóðsins. Alls auglýsti sjóðurinn styrki til sjö átaksverkefna í samkeppnishluta sjóðsins fyrir um 3,6 milljarða og var eftirspurn eftir styrkjum rúmlega fjórföld á við auglýsta upphæð. Ábati vegna beinna styrkja til ökutækja var tæplega fjórfaldur á við kostnað sjóðsins og þar af er ábati vegna styrkja til hóp- og vörubifreiða metinn um 80% meiri en vegna styrkja til fólks- og sendibíla. Alls námu skráðar skuldbindingar Loftslags- og orkusjóðs vegna beinna styrkja til ökutækja 8,6 ma.kr., en sjóðurinn styrkti á árinu 7.199 ökutæki, þar af 6.724 fólks- og sendibíla, 453 hóp- og vörubifreiðar og 22 nytjahjól. Þá nam samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna styrktra verkefna um 2% af samfélagslosun Íslands árið 2024.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800