Raforkuvísar í september 2026: Vaðölduver tekið í notkun og stórnotkun áþekk því sem var fyrir ári

Raforkueftirlitið hefur uppfært mælaborð Raforkuvísa með gögnum fyrir september 2026. Uppsett afl vindorkuvera á Íslandi jókst í september þegar Vaðölduver, áður nefnt Búrfellslundur, tók til starfa. Fyrstu 14 vindmyllur versins voru gangsettar 15. september og hófu þá að skila raforku inn á flutningskerfið.
Raforkunotkun stórnotenda var í september orðin svipuð og á sama tíma í fyrra. Þar gætir áhrifa þess að álver Norðuráls á Grundartanga var aftur komið í nær full afköst. Í uppfærðum Raforkuvísum birtir Raforkueftirlitið jafnframt á ný upplýsingar um orkujöfnuð og um það hversu stór hluti af áætlaðri forgangsorkuþörf almennra notenda er tryggður.
Raforkuvinnsla og notkun
Raforkuvinnsla á Íslandi nam um 1.581 GWst í september og jókst um 0,4% milli ára. Vatnsaflsvirkjanir skiluðu um 1.082 GWst, um 3% minna en í september í fyrra. Nýting þeirra fór úr 72,7% í 70,5%. Vinnsla jarðvarmavirkjana jókst á sama tíma um 8% og nam um 495 GWst. Í smávirkjunum jókst vinnslan um 6,2% og nam um 47 GWst.
Stórnotendur notuðu um 1.199 GWst í september, aðeins 0,5% minna en í sama mánuði í fyrra. Þar af fóru um 1.155 GWst til málmframleiðslu og 44 GWst til gagnavera. Afhending almennrar forgangsorku nam um 273 GWst og jókst um 2,1% milli ára. Flutningstöp jukust um 14,4% og námu um 31 GWst.
Orkujöfnuður og staða orkukaupa
Í mælaborðinu má nú aftur sjá mat Raforkueftirlitsins á orkujöfnuði. Matið sýnir hvernig áætlað framboð raforku á komandi tímabilum svarar til væntrar eftirspurnar. Einnig má sjá hversu stóran hluta af áætlaðri forgangsorkuþörf heimila og fyrirtækja raforkusalar hafa þegar tryggt með orkukaupum fram í tímann.
Bætt staða raforkuöryggis þýðir að minni óvissa ríkir um að fullnægjandi framboð raforku verði til staðar fyrir afhendingu forgangsorku. Staðan er þó viðkvæm ef horft er til væntrar eftirspurnar frá fyrsta ársfjórðungi 2027 til loka árs 2027. Mikilvægt er að halda áfram að greina horfur með ítarlegum og gagnsæjum hætti auk þess sem undirbúa þarf mögulegar mótvægisaðgerðir. Í þessu samhengi skiptir miklu máli að gera breytingar á raforkulögum og tryggja að Raforkueftirlitið hafi skýrar heimildir til ákvarðanatöku um raforkuöryggi sem og fullnægjandi lagaheimildir til markaðseftirlits. Virkari raforkumarkaður mun einnig stuðla að því að jafnvægi náist milli framboðs og eftirspurnar.
Ofangreindur orkujöfnuður nær til lok 2027 þar sem ítarleg greining á væntri framleiðslu er borin saman við forgangsnotkun og skerðanlega notkun. Raforkueftirlitið hefur frá hausti 2023 safnað upplýsingum mánaðarlega, frá öllum helstu vinnslufyrirtækjum og sölufyrirtækjum um vænta framleiðslu og sölu sem orkujöfnuðurinn byggir á.
Raforkuverð og gjaldskrár
Stundarmánaðarverð á heildsölumarkaði var 7,98 kr./kWst í september. Það hækkaði um 2,28 kr./kWst frá ágúst og var 23,9% hærra en í september í fyrra þegar það var 6,44 kr./kWst. Smásöluverð samkvæmt Raforkuvísum var 7,92 kr./kWst og breyttist lítið milli ára.
Meðalverð jöfnunarorku var 4,16 kr./kWst. Það hækkaði um 1,27 kr./kWst frá ágúst en var lægra en í september í fyrra þegar það var 4,46 kr./kWst. Grunnorkuverð lækkaði úr 7,60 í 7,49 kr./kWst milli ára.
Dreifigjald í þéttbýli var 14,89 kr./kWst að vegnu meðaltali og hækkaði um 6,4% milli ára. Flutningsgjald vegna almennrar notkunar lækkaði um 8,5% á sama tímabili og var 708,64 kr./MWst. Verð eru á verðlagi hvers árs.
Tafin birting og áreiðanleiki
Söfnun og úrvinnsla gagna hefur tafið birtingu Raforkuvísa. Raforkueftirlitið hefur varið töluverðum tíma í að yfirfara gögnin og leiðrétta villur til að tryggja að birtar tölur séu sem áreiðanlegastar.
Í mælaborði Raforkuvísa má skoða tölurnar nánar og nálgast skýringar á einstökum vísum. Mánaðartölur fyrir árið 2026 eru bráðabirgðatölur.
Ábendingar um mælaborðið má senda á raforkueftirlit@uos.is.









