Reglur um kaupverð rafbíla við úthlutun styrkja

Stjórn Loftslags- og orkusjóðs hefur skilgreint hvernig kaupverð rafbíla er reiknað þegar metið er hvort þeir uppfylli skilyrði fyrir rafbílstyrk.
Frá 1. nóvember 2026 þurfa fólksbílar að kosta minna en 8 milljónir króna og sendibílar áfram minna en 10 milljónir króna til að vera styrkhæfir, samkvæmt reglugerð nr. 1090/2026 um Loftslags- og orkusjóð.
Hvað telst til kaupverðs?
Við mat á því hvort bíll sé undir hámarksverði gilda eftirfarandi reglur:
- Miðað er við það verð sem kaupandi greiðir fyrir bílinn samkvæmt reikningi eða kaupsamningi.
- Allur búnaður sem fylgir bílnum úr framleiðslu telst með, bæði staðalbúnaður og búnaður sem valinn er við pöntun. Sama á við um dekkin sem fylgja bílnum, flutningsgjöld, önnur gjöld seljanda og virðisaukaskatt.
- Aukahlutir sem bætt er við eftir framleiðslu, til dæmis mottur, aukasett af dekkjum eða dráttarbeisli, teljast ekki með. Opinber gjöld vegna nýskráningar teljast heldur ekki með.
- Afsláttur sem seljandi veitir dregst frá. Styrkurinn og verð bíls sem tekinn er upp í kaupin dragast ekki frá.
- Fyrir bíla sem hafa áður verið skráðir erlendis gildir heildarverð með öllu sem fylgir bílnum.
Upplýsingar með umsókn
Þegar sótt er um rafbílastyrk á Ísland.is staðfestir umsækjandi að kaupverðið sé gefið upp í samræmi við skilgreininguna.
Loftslags- og orkusjóður getur óskað eftir reikningi, kaupsamningi og öðrum gögnum um kaupin og krafist endurgreiðslu styrks ef upplýsingar reynast rangar eða villandi.
Nánar um skilgreininguna og svör við algengum spurningum.









