Breytingar á styrkjum til kaupa á hreinorkubílum

Nýjar reglur um styrki til kaupa á hreinorkubílum taka gildi 1. nóvember 2026. Þá lækkar styrkur til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum úr 500.000 kr. í 400.000 kr. og hámarksverð styrkhæfra fólksbíla lækkar úr 10 milljónum króna í 8 milljónir króna.
Reglugerð nr. 1090/2026 um Loftslags- og orkusjóð var birt í Stjórnartíðindum 13. október og tekur gildi 1. nóvember. Hún leysir af hólmi reglugerð nr. 1566/2024 og tekur til allrar starfsemi sjóðsins.
Helstu breytingar
- Lægri styrkur til fólksbíla. Frá og með 1. nóvember verður styrkur til kaupa á nýjum fólksbíl (M1) 400.000 kr. í stað 500.000 kr.
- Lægra verðþak fyrir fólksbíla. Eftir 1. nóvember 2026 verða fólksbílar sem kosta meira en 8 milljónir króna ekki styrkhæfir. Áður var hámarkið 10 milljónir króna.
- Lægri styrkur til bíla sem hafa áður verið skráðir erlendis. Bílar sem eru nýskráðir á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis geta fengið allt að 320.000 kr. í stað 400.000 kr.
- Styrkir til sendibíla óbreyttir. Styrkur til sendibíla (N1) verður áfram 500.000 kr. og verðþakið 10 milljónir króna.
- Umsóknir vegna minni vörubíla færast á Ísland.is. Frá 1. janúar 2027 verður hægt að sækja um styrk vegna vörubíla í flokki N2 (3,5 til 7 tonn) á Ísland.is.
- Takmarkanir á útflutningi styrktra bíla. Óheimilt verður að flytja styrkt ökutæki úr landi innan þriggja ára frá því styrkur er veittur. Sé það gert getur sjóðurinn krafist endurgreiðslu.
Hvað ræður styrkfjárhæðinni?
Styrkfjárhæðin fyrir fólksbíla og sendibíla miðast við þann dag sem umsókn er samþykkt eftir nýskráningu bílsins. Umsóknir sem eru samþykktar fyrir 1. nóvember fá því styrk samkvæmt eldri reglum, að því gefnu að öll skilyrði séu uppfyllt.
Áfram gildir að sækja þarf um styrk innan 12 mánaða frá nýskráningu, að hvert ökutæki er aðeins styrkt einu sinni og að styrkurinn er greiddur skráðum aðaleiganda.









