Baráttan gegn eilífðarefnum í Frakklandi hlýtur Earthshot verðlaunin 2026

Franska herferðin „PFAS-laust Frakkland“ hlaut Earthshot verðlaunin í flokki hringrásarlausna við athöfn í Mumbai á Indlandi 17. nóvember 2026. Herferðin átti stóran þátt í að knýja fram lög sem takmarka notkun svokallaðra eilífðarefna (PFAS) í ýmsum neysluvörum í Frakklandi.
Vilhjálmur Bretaprins stofnaði verðlaunin árið 2020 til að efla lausnir á stærstu umhverfisvandamálum heims fyrir 2030. Árlega eru veitt verðlaun í fimm flokkum og hlýtur hvert sigurverkefni 1 milljón sterlingspunda.
Hvað eru eilífðarefni?
PFAS eru manngerð efni sem finnast meðal annars í viðloðunarfríum pottum og pönnum, snyrtivörum, matvælaumbúðum, slökkvifroðu og vatnsheldum fatnaði. Þau brotna nánast ekkert niður í umhverfinu og eru því kölluð eilífðarefni. Útsetning fyrir tilteknum PFAS efnum hefur verið tengd við ýmis heilsufarsvandamál, meðal annars ákveðnar tegundir krabbameina, skerta frjósemi og lifrarskemmdir.
Grasrótarbarátta sem skilaði árangri
Í Frakklandi tóku vísindamenn, félagasamtök og stjórnmálamenn höndum saman og yfir 200.000 borgarar þrýstu á þingmenn sína til að kjósa með frumvarpi PFAS laganna. Afraksturinn er lög frá 2025 sem banna PFAS í snyrtivörum, fatnaði og skíðavaxi frá 2026 og í öllum textíl frá 2030.
Vitundarvakning hefur orðið í Evrópu samhliða aukinni umræðu um skaðsemi og útbreiðslu PFAS. Í Frakklandi árið 2024 lét þingmaðurinn Nicolas Thierry til dæmis mæla PFAS í hári þrettán þjóðþekktra Frakka og greindust efnin hjá tíu þeirra.
Svipuð þróun hefur orðið í Danmörku. Þar vakti mikla athygli árið 2021 þegar hár styrkur PFAS mældist í blóði íbúa í Korsør. Íbúarnir höfðu árum saman borðað nautakjöt af gripum sem gengu á menguðu landi við æfingasvæði slökkviliðs. Í kjölfarið vildi meirihluti Dana banna PFAS í neysluvörum samkvæmt könnun dönsku neytendasamtakanna. Dönsk stjórnvöld hafa síðan bannað efnin, meðal annars í matvælaumbúðum úr pappír, í slökkvifroðu og fatnaði.
PFAS á Íslandi
Hér á landi gilda reglur ESB um þrávirk lífræn efni og efnareglugerðin REACH í gegnum EES-samninginn og takmarka þær notkun ýmissa PFAS í vörum. Umhverfis- og orkustofnun hefur greint háan styrk PFAS í grunnvatni í nágrenni Keflavíkurflugvallar og birtir meðal annars upplýsingar um PFAS á lista yfir varasöm efni. Stofnunin fylgist náið með tillögu Efnastofnunar Evrópu (ECHA) um víðtækt bann við eilífðarefnum.
Hvað getum við gert?
Hægt er að draga úr útsetningu fyrir PFAS-efnum með því að velja vörur merktar PFAS-lausar (á ensku oft „PFAS free“, „PFC free“ eða „fluorine free“) eða umhverfismerktar vörur, til dæmis með Svaninum eða Evrópublóminu.
Þá er gott að nota potta og pönnur úr keramiki, ryðfríu stáli eða steypujárni frekar en viðloðunarfríar, forðast skyndibita í fitufráhrindandi umbúðum, hugsa sig tvisvar um áður en vatnsvarnarefni eru notuð og ryksuga og þurrka af reglulega, þar sem efnin loða við ryk.









