Yfir 600 tóku þátt í Loftslagsdeginum 2026

Yfir 600 manns tóku þátt í Loftslagsdeginum 2026 sem haldinn var í Hörpu 28. október. Þema dagsins var öryggi og loftslagsbreytingar, með áherslu á tengsl loftslagsmála við samfélagsöryggi, fæðuöryggi og orkuöryggi.
Í fyrsta sinn var ný nálgun notuð við kynningu á tölum um losun gróðurhúsalofttegunda, þar sem losun og aðgerðir til að draga úr henni voru ræddar í sama erindi. Loftslagsdagurinn hlaut jafnframt Svansvottun og varð þar með fyrsti Svansvottaði viðburðurinn á Íslandi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flutti ávarp. Fyrirlesarar komu víða að, meðal annars úr stjórnsýslunni, atvinnulífinu, háskólasamfélaginu og hagsmunasamtökum.
Nokkrir starfsmenn Umhverfis- og orkustofnunar fluttu erindi og miðluðu þekkingu sinni á viðfangsefnum dagsins.

Rúmlega 300 þátttakendur voru í Norðurljósasal Hörpu og annar eins fjöldi fylgdist með í streymi.
Hraðar, hærra, sterkar - saman!
Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar, setti Loftslagsdaginn. Í ávarpi sínu vitnaði hann í orð Andra Snæs Magnasonar á Degi íslenskrar náttúru í september 2026:
„Þú verndar aðeins það sem þú elskar, elskar aðeins það sem þú þekkir, þú þekkir aðeins það sem þér er kennt.“
Gestur tók undir þessi orð og benti á mikilvægi þess að miðla þekkingu og traustum gögnum um stöðu Íslands í loftslagsmálum. Slík gögn styðja við upplýsta ákvarðanatöku, en þau ein og sér duga ekki. Við þurfum að gera meira og hraðar til að vernda það sem okkur þykir vænt um gegn áhrifum loftslagsbreytinga.
Hann lauk ávarpinu með því að hvetja þátttakendur til að sækja innblástur í einkunnaorð Ólympíuhreyfingarinnar: Hraðar, hærra, sterkar - saman!

Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar.
Ísland, best í heimi?
Birgir Urbancic Ásgeirsson, sérfræðingur í teymi losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun, og Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, fluttu sameiginlegt erindi um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og stöðu aðgerða í loftslagsmálum.
Þetta var í fyrsta sinn sem þessir tveir þættir voru teknir saman í einu erindi, annars vegar þróun losunar gróðurhúsalofttegunda og hins vegar aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að draga úr henni.

Birgir og Elín fjölluðu um stöðu losunar og aðgerða á myndrænan og lifandi hátt.
Meðal þess sem kom fram í erindinu var:
- Ísland hefur náð mikilvægum árangri í loftslagsmálum, sérstaklega í raforkuframleiðslu og húshitun. Orkuskipti, minni olíunotkun fiskiskipa og minni urðun lífræns úrgangs á síðustu árum hafa einnig skilað árangri.
- Losun er enn mikil vegna landnotkunar, fyrst og fremst frá framræstu landi. Endurheimt votlendis er einföld og hagkvæm loftslagsaðgerð sem hefur jafnframt ávinning fyrir líffræðilega fjölbreytni.
Spár gera ráð fyrir hægum samdrætti í sumum geirum og aukin umsvif geta vegið á móti þeim árangri sem næst. Tölurnar í erindinu byggðu á nýjum bráðabirgðatölum um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi sem komu út í september 2026.

Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir lagði áherslu á orkuskipti og orkunýtni til að stuðla að orkuöryggi.
Hvað ef ekkert olíuskip kæmi til Íslands næstu 30 daga?
Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir, sérfræðingur í teymi orkuskipta og orkunýtni hjá Umhverfis- og orkustofnun, velti þessari spurningu upp í erindinu: Leitum ekki langt yfir skammt - orkuskipti í þágu orkuöryggis.
Rúmlega fjórðungur af orkunotkun Íslendinga kemur frá innfluttri olíu og engar neyðarbirgðir eru til af olíu hér á landi. Hörn lagði því áherslu á að orkuskipti skipti ekki aðeins máli fyrir loftslagið heldur einnig fyrir öryggi þjóðarinnar. Með því að draga úr olíunotkun minnkum við jafnframt viðkvæmni gagnvart stríðsátökum, röskun á aðfangakeðjum og verðsveiflum.
Hún fjallaði einnig um mikilvægi orkunýtni og tók dæmi um árangur styrkja Loftslags- og orkusjóðs til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum. Þar fengu 16 garðyrkjubændur styrk til að skipta yfir í orkunýtnari LED-lýsingu. Raforkusparnaðurinn jafngilti árlegri raforkunotkun um 6.000 rafbíla, sem er svipaður fjöldi og nýskráðir rafbílar á Íslandi árið 2025.
Orkuöryggi er loftslagsmál
Hanna Björg Konráðsdóttir, skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins, greindi frá því að orkuöryggi væri svo sannarlega loftslagsmál. Þegar raforkuafhending bregst getur þurft að grípa til olíu, jafnvel þótt raforkukerfið byggist að mestu á endurnýjanlegum orkugjöfum.
Hanna tók dæmi um skerðingu í raforkuafhendingu hjá Orkubúi Vestfjarða árið 2024. Afleiðingarnar voru þær að brenna þurfti 4,2 milljónum lítra af olíu.
Því þarf að horfa til raunverulegs afhendingaröryggis raforku, ekki aðeins hvaðan orkan kemur. Jafnframt þarf að tryggja að nýjar tæknilausnir, svo sem orkugeymslur og sólarrafhlöður, styðji við aukið framboð orku og sveigjanleika í kerfisinu.

Hanna Björg Konráðsdóttir, skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins.
Hanna lagði áherslu á að Ísland byggi yfir sterkum grunni í vatnsafli og jarðvarma en þyrfti að halda áfram að efla orkuöryggi með þremur þáttum:
- Mati á áhættu sem greinir hættu áður en hún leiðir til orkuskorts.
- Skýrum reglum um hvernig bregðast eigi við þegar orkuöryggi er ógnað.
- Orkumarkaði þar sem allir geta lagt sitt af mörkum, allt frá stórum orkufyrirtækjum til einstaklinga og smærri orkuframleiðenda.
Sigríður Hagalín og Andri Snær hristu upp í salnum
Rithöfundarnir Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Andri Snær Magnason fluttu eftirtektarverð erindi á Loftslagsdaginn.
Sigríður flutti hugvekju í málstofunni um fæðuöryggi og sagði frá kveikjunni að bók sinni Eyland, sem kom út árið 2016. Bókin fjallar um það sem gerist þegar Ísland einangrast skyndilega frá umheiminum og engar vörur, lyf eða eldsneyti berast til landsins.
Andri Snær flutti lokaorð dagsins. Hann ræddi meðal annars þau viðmiðaskipti sem þurfa að eiga sér stað svo við förum að hanna samfélög upp á nýtt í takt við breytt loftslag.

Andri Snær flutti áhrifarík lokaorð.
Fyrsti Svansvottaði viðburðurinn á Íslandi
Loftslagsdagurinn 2026 er fyrsti viðburðurinn á Íslandi sem hlýtur Svansvottun. Markmið vottunarinnar er að draga úr umhverfisáhrifum viðburðarins. Gestir gátu meðal annars notið lífrænna grænmetisveitinga og nýtt sér ókeypis ferð með Hopp til og frá Hörpu.
Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi, og Rakel Lárusdóttir, sérfræðingur á fasteigna- og umhverfissviði Hörpu, ræddu um Svansvottun viðburða. Þar kom meðal annars fram að Harpa hefði hlotið Svansvottun sem ráðstefnurými árið 2022. Rakel sagði viðburðahaldara í Hörpu hafa sýnt aukinn áhuga á að draga úr umhverfisáhrifum viðburða sinna og að möguleikinn á Svansvottun þeirra væri því kærkomin viðbót.

Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi, afhendir Katrínu Björgu Jónasdóttur, verkefnastjóra Loftslagsdagsins, Svansleyfið í Hörpu.
Mikill áhugi á loftslagsmálum
Loftslagsdagurinn fór fram í Norðurljósasal Hörpu og í beinu streymi. Rúmlega 300 manns mættu í Hörpu og tæplega 300 fylgdust með útsendingunni þegar flestir voru.
Uppselt var á viðburðinn og talsverður biðlisti eftir sætum í Hörpu. Góð aðsókn sýnir þann mikla áhuga sem er á loftslagsmálum.










