Nánari upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi 1990-2055:
Nýjar tölur yfir losun gróðurhúsalofttegunda

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi dróst saman um 3,9% milli 2024 og 2025. Losunin var 10,6 milljón tonn af CO₂-ígildum (CO₂-íg.) árið 2025 og hefur aukist um 2,0% frá árinu 1990.
Losun Íslands má skipta í þrjá meginflokka: Samfélagslosun, landnotkun og staðbundin iðnaður (ETS).
Samfélagslosun
- Samfélagslosun Íslands dróst saman um 2,7% á milli 2024 og 2025. Hún var 2,8 milljón tonn CO₂-íg árið 2025.
- Umfangsmestu losunarflokkarnir voru vegasamgöngur, landbúnaður og fiskiskip.
- Gert er ráð fyrir að samdráttarkrafa Íslands í skuldbindingum gagnvart ESB verði að draga úr samfélagslosun um 41% árið 2030, miðað við árið 2005. Núgildandi krafa er 29%.
- Framreikningar sýna að Ísland standist líklega skuldbindingar fyrir tímabilið 2021-2025 þegar tekið er tillit til sveigjanleika milli skuldbindingarkerfa.
- Fyrir tímabilið 2026-2030 er hins vegar ólíklegt að Ísland standist skuldbindingar sínar, þrátt fyrir slíkan sveigjanleika. Áætlaður samdráttur í losun er um 21% árið 2030, miðað við losun ársins 2005.
- Tækifæri til samdráttar liggja í því að ráðast í frekari aðgerðir í loftslagsmálum. Það er hægt með því að fylgja eftir aðgerðum sem þegar eru til umræðu ásamt því að finna nýjar leiðir til samdráttar.
- Ef Ísland nær ekki skuldbindingum sínum ber að greiða fyrir það sem upp á vantar með kaupum á losunarheimildum frá öðrum ríkjum.
Landnotkun
- Losun frá landnotkun var 6,1 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur dregist saman um tæp 9,1% frá 1990.
- Meirihluti losunar frá landnotkun stafar af framræstu votlendi.
- Framreikningar sýna samdrátt í losun frá landnotkun yfir spátímabilið, vegna aukinnar endurheimtar votlendis, vaxandi bindingar í skóglendi og aukinnar landgræðslu.
- Útlit er fyrir að Ísland muni standast skuldbindingar sínar fyrir tímabilið 2021-2025.
Staðbundinn iðnaður (ETS)
- Losun frá staðbundnum iðnaði á Íslandi (aðallega ál- og kísilver) sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) var 1,7 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur aukist um 97% frá árinu 2005. Losunin dróst saman um 11% frá árinu 2024 aðallega vegna bilunar hjá Norðuráli og rekstrarstöðvunar PCC Bakka.
- Samdráttur hefur átt sér stað í viðskiptakerfinu í ESB. Með þátttöku í kerfinu er ekki um að ræða beinar samdráttarkröfur fyrir rekstraraðila á Íslandi.
Umhverfis- og orkustofnun skilaði nýlega til Evrópusambandsins bráðabirgðatölum um losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2025. Skilin eru unnin í nánu samstarfi við Land og skóg sem ber ábyrgð á landnotkunarhluta bókhaldsins.








