Töluverður loftslagsábati með stuðningi Loftslags- og orkusjóðs 2025

Olíusparnaður vegna verkefna sem hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði árið 2025 nam um 23 milljónum lítra á ársgrundvelli að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins sem nú er komin út. Þá nam nettó raforkusparnaður vegna styrktra verkefna 59 GWst á ári, sem samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla.
Mikill árangur náðist í orkuskiptum og orkunýtni á þessu fyrsta heila starfsári Loftslags- og orkusjóðs og má, að því er segir í skýrslunni, áætla að sjóðurinn hafi stuðlað að olíu- og raforkusparnaði til 15 ára, sem má verðmeta til 93 milljarða króna á núvirði.
Markaðsvirði olíu- og raforkusparnaðar vegna styrktra verkefna er metið rúmlega áttfalt á við kostnað sjóðsins. Þar af er eru samkeppnisverkefnin metin langsamlegast arðbærust, en ábati vegna þeirra er metinn um 24-faldur á við kostnað sjóðsins. Alls auglýsti sjóðurinn styrki til sjö átaksverkefna í samkeppnishluta sjóðsins fyrir um 3,6 milljarða og var eftirspurn eftir styrkjum rúmlega fjórföld á við auglýsta upphæð.
Ábati vegna beinna styrkja til ökutækja var tæplega fjórfaldur á við kostnað sjóðsins og þar af er ábati vegna styrkja til hóp- og vörubifreiða metinn um 80% meiri en vegna styrkja til fólks- og sendibíla. Alls námu skráðar skuldbindingar Loftslags- og orkusjóðs vegna beinna styrkja til ökutækja 8,6 ma.kr., en sjóðurinn styrkti á árinu 7.199 ökutæki, þar af 6.724 fólks- og sendibíla, 453 hóp- og vörubifreiðar og 22 nytjahjól.
Þá nam samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna styrktra verkefna um 2% af samfélagslosun Íslands árið 2024.









