Umhverfis- og orkustofnun hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA

Umhverfis- og orkustofnun hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fyrir árangur í kynjajafnvægi á efsta stjórnendastigi.
„Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á mikilvægi þess að vinna markvisst að jafnrétti og skapa starfsumhverfi þar sem fjölbreytileiki og jafnræði fá að njóta sín. Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir mikilvægt framtak og höldum áfram að leggja okkar af mörkum til jafnréttis á vinnustöðum“ sagði Þórdís Helgadóttir, sérfræðingur í mannauðsteymi Umhverfis- og orkustofnunar.
Um Jafnvægisvog FKA
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni FKA sem unnið er í samstarfi við stjórnvöld og hagsmunaaðila í íslensku atvinnulífi. Markmiðið er að hlutfall hvors kyns verði að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, opinberra stofnana, lífeyrissjóða og sveitarfélaga.
Vinnustaðir eru hvattir til að ganga til liðs við verkefnið með undirritun viljayfirlýsingar, setja sér skýr markmið og fylgja þeim eftir. Jafnvægisvogin stendur jafnframt fyrir greiningum, fræðslu og viðburðum, fylgist með þróun kynjajafnvægis og veitir árlega viðurkenningar til þeirra þátttakenda sem hafa náð markmiðinu.









