Drekasvæðið - Samantekt á niðurstöðum rannsókna

Umhverfis- og orkustofnun telur litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu norðaustur af Íslandi. Þetta er niðurstaða yfirferðar stofnunarinnar á áratugalöngum rannsóknum á svæðinu og er í samræmi við fyrri niðurstöður þeirra aðila sem hafa rannsakað svæðið.
Drekasvæðið er hluti af Jan Mayen hrygg, sem liggur frá Jan Mayen í suður og inn fyrir íslenska lögsögu. Svæðið hefur lengi vakið áhuga almennings og atvinnulífs. Þar hefur verið talið að kunni að leynast jarðlög sem eru sambærileg þeim sem geyma olíu og gas á norska landgrunninu og er einnig að finna á austurströnd Grænlands.
Á undanförnum árum hafa nokkur olíufélög rannsakað svæðið á grundvelli sérleyfa sem íslensk stjórnvöld veittu. Félögin framkvæmdu meðal annars hljóðendurvarpsmælingar, segulmælingar og aðrar jarðeðlisfræðilegar rannsóknir til að meta möguleika á olíu- og gaslindum.
Flóknari jarðfræði en áður var talið
Niðurstöður rannsókna benda til þess að jarðfræði svæðisins sé mun flóknari en áður hafði verið gert ráð fyrir.
Þykk basaltlög, mikil eldvirkni og umfangsmiklar brotahreyfingar í jarðskorpunni gera erfitt að greina eldri jarðlög sem gætu innihaldið kolvetni. Jafnframt benda niðurstöður til þess að þau jarðlög sem hugsanlega hafa myndað eða geymt olíu og gas hafi orðið fyrir verulegum áhrifum jarðfræðilegra ferla í gegnum tíðina.
Öll félögin sem fengu leyfi á svæðinu skiluðu þeim að lokum inn án þess að ráðast í rannsóknarboranir.
ÍSOR staðfestir niðurstöðurnar
Umhverfis- og orkustofnun fól ÍSOR að fara yfir gögn leyfishafanna og leggja fram sjálfstætt mat.
ÍSOR komst að þeirri niðurstöðu að eldvirkni og hreyfingar í jarðskorpu hefðu líklega raskað mögulegum olíu- og gaslindum á stórum hluta Drekasvæðisins. Að mati stofnunarinnar eru meiri líkur á varðveislu kolvetna norðar á Jan Mayen hrygg en innan Drekasvæðisins sjálfs.
Enn er óvissa til staðar
Umhverfis- og orkustofnun bendir á að engin rannsóknarhola hafi verið boruð á svæðinu. Því sé ekki hægt að útiloka með fullri vissu að þar sé að finna olíu eða gas.
Stofnunin telur þó að fyrirliggjandi gögn bendi til þess að líkurnar á vinnanlegum kolvetnislindum séu mjög litlar. Til að draga verulega úr þeirri óvissu sem enn er til staðar þyrfti að bora djúpa rannsóknarholu, líklega á bilinu 3 til 6 kílómetra djúpa, með það fyrir augum að kanna gerð, eðli og ástand jarðlaga á svæðinu.
Gögn verða gerð aðgengileg
Með gagnsæi að leiðarljósi áformar Umhverfis- og orkustofnun að gera gögn sem safnast hafa á rannsóknatímanum aðgengileg vísindasamfélaginu og almenningi eftir því sem lög heimila.
Jafnframt mun stofnunin undirbúa reglur og viðmið um afhendingu rannsóknar- og mæligagna til þeirra aðila sem hafa áhuga á að rannsaka svæðið nánar.
Í ljósi þeirrar þekkingar sem nú liggur fyrir telur Umhverfis- og orkustofnun ekki forsendur fyrir því að auglýsa eftir umsóknum um ný leyfi til rannsókna eða vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu.









