Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda

Flugfélögin Icelandair og Air Atlanta fengu úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum vegna notkunar á sjálfbæru flugvélaeldsneyti.

Umhverfis- og orkustofnun hefur úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum vegna ársins 2026 til fimm rekstraraðila í iðnaði og þriggja í flugi.

Úthlutun til rekstraraðila í iðnaði 2026 - 2030

Umhverfis- og orkustofnun hefur úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum vegna ársins 2026 á reikninga fimm rekstraraðila í iðnaði. Rekstraraðilar hafa einnig fengið tilkynningu um ákvörðun stofnunarinnar um úthlutun fyrir árin 2026-2030.

Vorið 2024 gátu rekstraraðilar í iðnaði sótt um endurgjaldslausar losunarheimildir fyrir síðari hluta fjórða viðskiptatímabils viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS). Umhverfis- og orkustofnun, Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og framkvæmdastjórn ESB fóru yfir umsóknirnar og reiknuðu út ný viðmiðunargildi og úthlutun heimilda.

ESA samþykkti bæði forlista um úthlutanir og lokaútgáfu listans.

Úthlutanir geta breyst

Árlegar úthlutanir geta breyst ef starfsemisstig rekstraraðila í iðnaði breytist eða ef nýjar upplýsingar berast.

Starfsemisstig segir til um umfang starfsemi rekstraraðila innan ETS og er oftast miðað við framleiðslumagn. Rekstraraðilar skila árlega upplýsingum um starfsemisstig samhliða skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda.

Tafla 1: Áætluð úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila í iðnaði 2026–2030.

Rekstraraðili20262027202820292030
Alcoa Fjarðaál464.402452.495428.679369.140245.300
Elkem346.493346.493325.076325.076325.076
Norðurál433.791422.668400.423344.808229.131
PCC BakkiSilicon94.28694.28688.47188.47188.471
Rio Tinto282.939275.685261.174224.900149.450

Úthlutun til flugrekenda

Umhverfis- og orkustofnun úthlutaði endurgjaldslausum losunarheimildum til þriggja flugrekenda í september 2026.

Icelandair og Neos SpA úthlutun fengu vegna sérlausnar Íslands. Sú lausn felst í því að flugrekendur sem fljúga milli Íslands og annarra ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) geta sótt um úthlutun frá íslenska ríkinu. Fjöldi heimilda sem flugrekendur geta fengið takmarkast af:

  • fjölda uppboðsheimilda sem íslenska ríkið fær vegna flugreksturs innan ETS,
  • losun vegna fluga milli Íslands og EES og
  • þeim fjölda endurgjaldslausra losunarheimilda sem flugrekandi fékk árið 2023.

Icelandair og Air Atlanta fengu úthlutun vegna notkunar á sjálfbæru flugvélaeldsneyti (FEETS). Úthlutunin fór fram eftir að samþykki ESA fékkst. Flugrekendur geta fengið endurgjaldslausar losunarheimildir sem jafngilda ákveðnu hlutfalli af verðmuninum á hefðbundnu og sjálfbæru flugvélaeldsneyti.

Tafla 2: Úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til flugrekenda árið 2026.

FlugrekandiSérlausn ÍslandsFEETS
Air Atlantax264
Icelandair115.7789.737
Neos SpA3.888x

Ljósmynd með frétt: Bernd Dittrich á Unsplash.

Fleiri fréttir

Skoða
2. október 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot – frestur framlengdur til 31. október
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028–2033. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 31. október 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.
24. september 2026
Auglýst eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar
Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.  Bláskelin fær nýtt hlutverk  Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira.  Hverju leitum við að?  Við mat á tilnefningum verður meðal annars horft til:  Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.  Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.  Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.  Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu. Góðar lausnir þurfa ekki alltaf að vera nýjar. Stundum felst hugvitið í því að heimfæra lausnir sem hafa reynst vel erlendis, horfa til baka,  enduruppgötva það sem virkaði og laga það að þörfum framtíðarinnar. Við leitum því bæði að nýjum og framsæknum lausnum og rótgrónum verkefnum sem hafa þegar sýnt árangur.  Hver á skilið Bláskelina 2026?  Tilnefna má fyrirtæki, stofnun, einstakling eða samtök fyrir verkefni eða lausn á sviði hringrásarhagkerfisins. Aðilar geta bæði tilnefnt eigin verkefni og annarra.   Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.  Tekið er við tilnefningum út 20. október 2026.   
22. september 2026
Nýjar tölur yfir losun gróðurhúsalofttegunda
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi dróst saman um 3,9% milli 2024 og 2025. Losunin var 10,6 milljón tonn af CO₂-ígildum (CO₂-íg.) árið 2025 og hefur aukist um 2,0% frá árinu 1990. Losun Íslands má skipta í þrjá meginflokka: Samfélagslosun, landnotkun og staðbundin iðnaður (ETS). Samfélagslosun Samfélagslosun Íslands dróst saman um 2,7% á milli 2024 og 2025. Hún var 2,8 milljón tonn CO₂-íg árið 2025. Umfangsmestu losunarflokkarnir voru vegasamgöngur, landbúnaður og fiskiskip. Gert er ráð fyrir að samdráttarkrafa Íslands í skuldbindingum gagnvart ESB verði að draga úr samfélagslosun um 41% árið 2030, miðað við árið 2005. Núgildandi krafa er 29%. Framreikningar sýna að Ísland standist líklega skuldbindingar fyrir tímabilið 2021-2025 þegar tekið er tillit til sveigjanleika milli skuldbindingarkerfa. Fyrir tímabilið 2026-2030 er hins vegar ólíklegt að Ísland standist skuldbindingar sínar, þrátt fyrir slíkan sveigjanleika. Áætlaður samdráttur í losun er um 21% árið 2030, miðað við losun ársins 2005. Tækifæri til samdráttar liggja í því að ráðast í frekari aðgerðir í loftslagsmálum. Það er hægt með því að fylgja eftir aðgerðum sem þegar eru til umræðu ásamt því að finna nýjar leiðir til samdráttar. Ef Ísland nær ekki skuldbindingum sínum ber að greiða fyrir það sem upp á vantar með kaupum á losunarheimildum frá öðrum ríkjum. Landnotkun Losun frá landnotkun var 6,1 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur dregist saman um tæp 9,1% frá 1990. Meirihluti losunar frá landnotkun stafar af framræstu votlendi. Framreikningar sýna samdrátt í losun frá landnotkun yfir spátímabilið, vegna aukinnar endurheimtar votlendis, vaxandi bindingar í skóglendi og aukinnar landgræðslu. Útlit er fyrir að Ísland muni standast skuldbindingar sínar fyrir tímabilið 2021-2025. Staðbundinn iðnaður (ETS) Losun frá staðbundnum iðnaði á Íslandi (aðallega ál- og kísilver) sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) var 1,7 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur aukist um 97% frá árinu 2005. Losunin dróst saman um 11% frá árinu 2024 aðallega vegna bilunar hjá Norðuráli og rekstrarstöðvunar PCC Bakka. Samdráttur hefur átt sér stað í viðskiptakerfinu í ESB. Með þátttöku í kerfinu er ekki um að ræða beinar samdráttarkröfur fyrir rekstraraðila á Íslandi.  Umhverfis- og orkustofnun skilaði nýlega til Evrópusambandsins bráðabirgðatölum um losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2025. Skilin eru unnin í nánu samstarfi við Land og skóg sem ber ábyrgð á landnotkunarhluta bókhaldsins.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800