Hvernig er eftirliti með jarðborum háttað?

Jarðborar eru notaðir víða á Íslandi, meðal annars til að bora eftir heitu og köldu vatni, rannsaka berggrunn, leggja lagnir og byggja mannvirki. Til að draga úr hættu á mengun þurfa allir jarðborar að uppfylla kröfur um mengunarvarnir og sæta eftirliti.
Af hverju þarf leyfi fyrir jarðborum?
Jarðborar geta haft áhrif á umhverfið, meðal annars vegna olíu, eldsneytis og skolvatns sem fellur til við borun. Því þurfa borverktakar að sækja um starfsleyfi eða skrá starfsemina hjá Umhverfis- og orkustofnun áður en borunin hefst.
Stærri borar, sem þurfa 1 MW eða meira til starfseminnar, eru starfsleyfisskyldir. Minni borar eru skráningarskyldir.
Munurinn á starfsleyfum og skráningarskyldu er sá að stærri borum fylgir oft meiri áhætta fyrir umhverfið. Þeir þurfa því að uppfylla sértækari skilyrði um mengunarvarnir til þess að fá starfsleyfi. Minni borar þurfa að uppfylla stöðluð skráningarskilyrði.
Hvað þarf að uppfylla?
Í starfsleyfi eða skráningu jarðbora eru settar fram kröfur um mengunarvarnir sem eiga að koma í veg fyrir að mengun berist út í umhverfið.
Dæmi um slíkar mengunarvarnir eru:
- ísogsbúnaður
- árekstrarvarnir við olíugeyma
- setgryfjur
- olíugildrur
- viðbragðsáætlanir ef olía lekur út í umhverfið
Kröfurnar taka mið af umfangi starfseminnar og þeirri áhættu sem henni fylgir.
Hvað gerir Umhverfis- og orkustofnun?
Umhverfis- og orkustofnun:
- gefur út starfsleyfi fyrir jarðbora
- skráir minni jarðbora
- hefur eftirlit með mengunarvörnum
- heldur utan um borholuskrá Íslands
Hvað gerist eftir að leyfi hefur verið veitt?
Fyrirtækin bera ábyrgð á því að mengunarvarnir séu í lagi. Stofnunin hefur svo eftirlit með því að starfsemin uppfylli skilyrði starfsleyfisins eða skráningarinnar.
Jarðborar eru færanleg tæki og því þarf að tilkynna Umhverfis- og orkustofnun í hvert sinn sem bor er fluttur á nýjan stað.
Hvert er hlutverk sveitarfélaga?
Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með mengunarvörnum jarðborsins sjálfs.
Áhrif framkvæmdarinnar í heild eru hins vegar metin í gegnum framkvæmdaleyfi sveitarfélaga og eftir atvikum umhverfismat. Þar geta verið sett skilyrði um nauðsynlegar mótvægisaðgerðir, vöktun og öryggisráðstafanir til að draga úr áhrifum borunarinnar á umhverfið.

Fyrirtækin bera ábyrgð á því að mengunarvarnir séu lagi.









