Leyfð arðsemi af flutningi og dreifingu raforku 2027

Raforkueftirlitið hefur birt ákvörðun um leyfða arðsemi af flutningi og dreifingu raforku fyrir árið 2027. Arðsemin byggir á vegnum fjármagnskostnaði.
Fyrir árið 2027 nemur veginn fjármagnskostnaður fyrir skatt:
- 5,28% fyrir flutning raforku til stórnotenda
- 5,76% fyrir flutning raforku til dreifiveitna
- 5,81% fyrir dreifing raforku til almennra notenda
Hlutverk leyfðrar arðsemi
Tekjumörk sérleyfisfyrirtækja byggja á leyfðum fjármagnskostnaði, rekstrarkostnaði og afskriftum. Leyfður fjármagnskostnaður endurspeglar kostnað fyrirtækjanna af því fjármagni sem er bundið í starfseminni. Hann skiptist í tvennt:
- Leyfð arðsemi fastafjármuna, þar sem veginn fjármagnskostnaður er margfaldaður með verðlagsleiðréttu bókfærðu virði þeirra eigna sem teljast til sérleyfisstarfseminnar.
- Leyfð arðsemi á veltufé, sem er reiknað með föstu hlutfalli (t.d. 20% í tilfelli flutningsfyrirtækisins) af tekjumörkum fyrra árs og síðan margfaldað með vegnum fjármagnskostnaði, til að endurspegla fjármagnsþörf vegna tímatafar á innheimtum tekjum.
Endurskoðun fastra matsbreytna
Sérfræðinganefnd hefur unnið að endurskoðun fastra matsbreytna í samræmi við 7. gr. reglugerðar nr. 192/2016. Nefndin hefur birt drög að áliti sínu. Nefndin hefur ekki lokið störfum sínum og því eru fastar matsbreytur eru óbreyttar frá fyrra ári.
Niðurstöður nefndarinnar og samráð við hagsmunaaðila er skilyrði þess að Raforkueftirlitið geti lagt fram tillögu til ráðherra um endurskoðun fastra matsbreytna um leyfða arðsemi.
Ákvörðun tekin árlega
Samkvæmt reglugerð nr. 192/2016 ber Raforkueftirlitinu að ákvarða veginn fjármagnskostnað fyrir næsta almanaksár eigi síðar en 15. maí ár hvert.









