Ísland segir sig frá orkusáttmálanum (ECT)

Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá samningi um orkusáttmála (Energy Charter Treaty, ECT) í ljósi þess að samningurinn gengur gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt íslenskra stjórnvalda í orkumálum. Úrsögnin tekur gildi árið 2027 í samræmi við ákvæði samningsins og með því falla niður allar greiðslur til skrifstofu samningsins.









