Sendiherra Tékklands heimsótti Umhverfis- og orkustofnun

David Červenka, sendiherra Tékklands, fundaði með fulltrúum Umhverfis- og orkustofnunar 16. júní vegna fyrirhugaðrar heimsóknar tékkneskrar sendinefndar til Íslands í september.
Tékkneska sendinefndin hefur sérstakan áhuga á íslenskri reynslu af jarðhita, kolefnisförgun og -bindingu og möguleikum á samstarfi á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála.
Sendinefndin verður skipuð fulltrúum tékkneska umhverfisráðuneytisins, State Environmental Fund og einkageirans og gert er ráð fyrir að hún verði á Íslandi 22.–24. september 2026.
Í heimsókninni er stefnt að fundum með fulltrúum stjórnvalda, Umhverfis- og orkustofnunar, Rannís og íslenskra fyrirtækja. Einnig verður kannað hvernig efla megi samstarf ríkjanna, meðal annars í gegnum EES-samninginn og Uppbyggingarsjóð EES.









