Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Slitið malbik veldur mikilli svifryksmengun

Loftgæði í höfuðborginni hafa verið slæm undanfarna daga.

Mikil svifryksmengun mældist á höfuðborgarsvæðinu þann 16. febrúar 2026. Styrkur grófs svifryks fór víða yfir heilsuverndarmörk.

Mestur styrkur mældist við Grensásveg. Hæsta klukkustundarmeðaltal á grófu svifryki (PM10) var 475 µg/m³ og sólarhringsmeðaltalið var 153 µg/m³.

Við Dalsmára í Kópavogi mældist sólarhringsmeðaltalið 99 µg/m³.

11 sinnum yfir heilsuverndarmörk á Grensásvegi

Heilsuverndarmörk fyrir gróft svifryk eru 50 µg/m³ að meðaltal fyrir heilan sólarhring. Ekki má fara oftar en 35 sinnum á ári yfir þau mörk.

Það sem af er ári hefur svifryksmengun farið 11 sinnum yfir mörkin á Grensásvegi.

Algengt á þessum árstíma

Í meðalári mælast hæstu svifryksgildi oftast í febrúar og mars. Á þessum árstíma er stærstur hluti svifryksins malbiksryk sem verður til við slit á vegyfirborði. Það er að stærstum hluta af völdum nagladekkja.

Þurrt veður og úrkomuleysi auka líkur á háum styrk.

Rykbinding og götusópun

Síðustu vikur hafa verið óvenju snjóléttar og götur hafa verið rykbundnar talsvert oftar en venjulega. Birgðir af rykbindiefni kláruðust því fyrr en áætlað var. Von er á nýrri sendingu til landsins í lok vikunnar.

Það er erfitt að sópa götur í frosti. Um mánaðarmótin janúar-febrúar kom veðurgluggi með hlýindum sem var nýttur til að sópa götur. Vegagerðin sópaði þá helstu þjóðvegi í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavíkurborg sópaði á sama tíma allar þær götur sem má sjá á meðfylgjandi korti.

Í mikill umferð þegar um 40% bíla eru á nagladekkjum er slitið malbik hins vegar fljótt að safnast upp aftur í vegköntum.

Image

Mynd: Götur sem eru rauðmerkar lét Reykjavíkurborg sópa um mánaðarmótin janúar-febrúar. Götur sem Vegagerðin sópaði eru ekki merktar inn. Það eru: Miklabraut/Hringbraut, Kringlumýrarbraut, Hafnarfjarðarvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut að Hvaleyrarholti.

Ráðleggingar til almennings

Mengun er mest við stórar umferðaræðar en lækkar hratt með fjarlægð frá götu. Þar munar um hverja tíu metra sem farið er frá götu og í um 200 metra fjarlægð er mengun talsvert mikið minni en við götubrún.

Fólki sem er viðkvæmt fyrir loftmengun er bent á að:

  • Fylgjast með loftgæðaupplýsingum á loftgaedi.is.
  • Takmarka útiveru nálægt umferðarþungum götum þegar mengun er mikil.
  • Velja frekar gönguleiðir og útivistarsvæði fjarri helstu umferðaræðum.

Tengt efni

Fleiri fréttir

Skoða
4. september 2026
Hleðslustöðvum á landsbyggðinni fjölgað um 21
Loftslags- og orkusjóður hefur lokið úthlutun styrkja sem miða að því að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Markmiðið er að tryggja að hvergi sé meira en 100 km á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverju einasta þéttbýli á landinu. Átakið er liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa og hækkandi olíuverðs. Markmiðið er að gera sem allra flestum Íslendingum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni og keyra um á hreinni íslenskri orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:  „Við afnámum vörugjöld af rafbílum í upphafi árs og nú snarfjölgum við hleðslustöðvum vítt og breitt um landið, eyðum þannig skallablettunum í hleðslunetinu og vinnum gegn hleðslukvíða. Skilaboðin eru þessi: Núna er rétti tíminn til að skipta yfir á rafmagnsbíl. Með því að skipta óhreinu innfluttu eldsneyti út fyrir íslenska orku spörum við tugmilljarða gjaldeyri, styrkjum orkusjálfstæði Íslands og verjum heimilisbókhaldið fyrir ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á.“  Alls hljóta 17 verkefni víðs vegar um landið styrki, þar af 13 verkefni til uppsetningar á hleðslustöðvum í þéttbýli og fjögur til uppsetningar á þjóðvegakerfinu. Heildarupphæð styrkjanna er 151 m.kr.   Með átakinu fjölgar hleðslustöðvum á landsbyggðinni um samtals 21 og tenglum um 41 og alls staðar verður boðið upp á greiðslu með greiðslukorti án þess að app eða áskrift þurfi til.
1. september 2026
Raforkueftirlitið kallar eftir auknu gagnsæi á íslenskum raforkumarkaði
Raforkueftirlitið hefur sent frá sér leiðbeiningar til Landsnets og annarra aðila á íslenskum heildsöluorkumarkaði um afhendingu og birtingu upplýsinga. Eftirlitið telur að gildandi reglum um gagnsæi á raforkumarkaði hafi ekki verið framfylgt með fullnægjandi hætti hér á landi og að breyttar aðstæður kalli á úrbætur.  Aukin upplýsingagjöf Um er að ræða svokallaða Gagnsæisreglugerð ESB á orkumarkaði, sem hefur verið í gildi á Íslandi frá árinu 2020. Reglugerðin kveður meðal annars á um að upplýsingar um raforkuframleiðslu, notkun, bilanir, ótiltækileika framleiðslueininga, flutningskerfi og jöfnun skuli safnað og birtar opinberlega með samræmdum hætti. Markmið Markmiðið er að tryggja að markaðsaðilar hafi jafnan aðgang að mikilvægum upplýsingum og að íslenskur raforkumarkaður verði gagnsærri og fyrirsjáanlegri. Upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga á grundvelli 20. gr. h. raforkulaga, sbr. REMIT, og upplýsingaskylda á grundvelli gagnsæisreglugerðarinnar eru ekki ein og hin sama, þótt ákveðið samspil sé þar á milli.  Samræmd upplýsingagjöf Samkvæmt reglugerðinni ber Landsneti að safna upplýsingum frá aðilum á orkumarkaði og birta þær á miðlægum upplýsingavettvangi ENTSO-E og í NUCS-kerfinu. Íslenski orkumarkaðurinn er hluti af innri markaði með raforku samkvæmt EES-samningnum og því þurfa upplýsingar að vera aðgengilegar með sama hætti og eftir sömu stöðlum og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Raforkueftirlitið beinir því nú til Landsnets og aðaleigenda gagna, þar á meðal framleiðenda, stórnotenda og viðskiptavettvanga raforku, að hefja innleiðingu á breyttu verklagi og stöðluðum gagnaskilum. Aðilar eiga jafnframt að hefja samstarf um framkvæmd verkefnisins og tímaramma þess.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800