Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Sólarorka sem hluti af lausninni

Á Garði í Eyjafjarðarsveit er búið að setja upp sólarsellur með góðum árangri.

HYBES - nýtt evrópskt tilraunaverkefni sýnir að sólarorka getur gegnt mikilvægu hlutverki í orkuskiptum á Íslandi. Sérstaklega á afskekktum svæðum og utan raforkukerfisins.

Fjölbreytt verkefni sýna árangur

Orkusetur Umhverfis- og orkustofnunar úthlutaði samkeppnisstyrkjum til uppsetningar sólarsella árið 2024. Þar var lögð áhersla á verkefni sem draga úr eigin raforkunotkun og minnka losun. Mikil aðsókn var að styrkjunum og vegna takmarkaðs fjármagns fengu verkefni í dreifbýli eða utan samveitna úthlutun.

Verkefni sem hafa hlotið styrki sýna verulegan árangur:

  • Minni olíunotkun og þar með minni losun gróðurhúsalofttegunda.
  • Aukið orkuöryggi og sjálfbærni í afskekktum byggðum.
  • Hagkvæmari orkulausnir utan raforkukerfis.

Raunverulegur ávinningur af sólarsellum á Íslandi

Dæmi um raunverulegan ávinning af verkefnum sem hlutu styrk á Íslandi:

Sjálfbærari rekstur - Garður í Eyjafjarðarsveit

Á býlinu er umfangsmikil mjólkurframleiðsla með um 150 mjólkurkýr auk annarra gripa. Árleg raforkunotkun er um 340.000 kWh. Settur var upp 43,5 kW sólorkubúnaður á þökum útihúsa sem áætlað er að framleiði um 12.400 kWh á ári. Kerfið gerir búinu kleift að framleiða hluta raforku sinnar sjálft, draga úr rekstrarkostnaði og draga úr þörf fyrir dísilrafstöð.

Minni þörf á dísilrafstöð - Akureyjar í Breiðafirði

Á eyjunni fer fram æðardúnsöflun sem áður fyrr reiddi sig alfarið á dísilrafstöð, þar sem olíunotkun var allt að 40–50 l/dag). Með uppsetningu sólorkukerfi og rafhlöðu hefur olíunotkun minnkað í um 6 l/dag og á góðum dögum er hægt að sleppa dísilrafstöð alveg. Þetta hefur bæði lækkað kostnað, aukið þægindi og dregið verulega úr umhverfisáhrifum.

Minni gasnotkun - Sumarhúsasvæði á Illugastöðum á Vestfjörðum

Þetta svæði er staðsett utan raforkukerfis. Orkuþörf á svæðinu hefur aukist, til dæmis vegna aukinna rafbílavæðingar. Með uppsetningu á 3kW sólarorkukerfi hefur tekist að draga úr gasnotkun og bæta aðgengi að rafmagni fyrir sumartímann.

Læra af sjálfbærri kennslustofu

Liður í HYBES verkefninu er samstarf Orkuseturs við Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA) og Rafmennt. Samstarfið leggur grunn að nýrri verkmenntun í uppsetningu og rekstri sólorkukerfa á Íslandi. Nemendur í VMA læra réttu handtökin af raunverulegum kerfum í sjálfbærri kennslustofu í skólanum. Kennslustofan er knúin af sól og vindi ásamt rafhlöðu

Móta ramma fyrir nýtingu sólarorku

Í gegnum HYBES hefur Orkusetur unnið markvisst að því að móta skýrari ramma fyrir nýtingu sólarorku á Íslandi.

Reynslan úr verkefninu hefur sýnt að:

  • Sólarorka er raunhæfur kostur til eigin notkunar á Íslandi, þó afhending umframorku inn á kerfið sé enn í þróun.
  • Blönduð orkukerfi eru lykilatriði við norðlægar aðstæður.
  • Markviss stjórnsýsla, tæknimenntun og hvatar til uppsetningar eru forsenda hraðari orkuskipta.

Um HYBES verkefnið

HYBES er alþjóðlegt þróunar- og rannsóknarverkefni sem kannar blönduð orkukerfi sem samþætta endurnýjanlega orkugjafa og orkugeymslutækni til að veita sjálfbærar orkulausnir fyrir samfélög á norðurslóðum. Þátttakendur í verkefninu eru:

Færeyjar: Umhverfisstofnun Færeyja.

Írland: Sveitarfélagið Cork, University College Cork og Secure and Fix It Enterprises.

Ísland: Orkusetur / Umhverfis- og orkustofnun.

Noregur: Nordland Research Institute (leiðir verkefnið), sveitarfélagið Bodø.

Svíþjóð: Umeå borg, Umeå University.

Image

Mynd: HYBES samstarfshópurinn í Bodø í Noregi í febrúar 2023.

Fleiri fréttir

Skoða
9. júlí 2026
Töluverður loftslagsábati með stuðningi Loftslags- og orkusjóðs 2025
Olíusparnaður vegna verkefna sem hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði árið 2025 nam um 23 milljónum lítra á ársgrundvelli að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins sem nú er komin út. Þá nam nettó raforkusparnaður vegna styrktra verkefna 59 GWst á ári, sem  samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla. Mikill árangur náðist í orkuskiptum og orkunýtni á þessu fyrsta heila starfsári Loftslags- og orkusjóðs og má, að því er segir í skýrslunni, áætla að sjóðurinn hafi stuðlað að olíu- og raforkusparnaði til 15 ára, sem má verðmeta til 93 milljarða króna á núvirði. Markaðsvirði olíu- og raforkusparnaðar vegna styrktra verkefna er metið rúmlega áttfalt á við kostnað sjóðsins. Þar af er eru samkeppnisverkefnin metin langsamlegast arðbærust, en ábati vegna þeirra er metinn um 24-faldur á við kostnað sjóðsins. Alls auglýsti sjóðurinn styrki til sjö átaksverkefna í samkeppnishluta sjóðsins fyrir um 3,6 milljarða og var eftirspurn eftir styrkjum rúmlega fjórföld á við auglýsta upphæð. Ábati vegna beinna styrkja til ökutækja var tæplega fjórfaldur á við kostnað sjóðsins og þar af er ábati vegna styrkja til hóp- og vörubifreiða metinn um 80% meiri en vegna styrkja til fólks- og sendibíla. Alls námu skráðar skuldbindingar Loftslags- og orkusjóðs vegna beinna styrkja til ökutækja 8,6 ma.kr., en sjóðurinn styrkti á árinu 7.199 ökutæki, þar af 6.724 fólks- og sendibíla, 453 hóp- og vörubifreiðar og 22 nytjahjól. Þá nam samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna styrktra verkefna um 2% af samfélagslosun Íslands árið 2024.
25. júní 2026
Nýtt mælaborð veitir betri yfirsýn yfir rekstur raforkukerfisins
Raforkueftirlitið hefur birt mælaborð sem sýnir þróun lykilstærða hjá sérleyfisfyrirtækjum í flutningi og dreifingu raforku. Markmiðið er að auka aðgengi að upplýsingum um rekstur raforkukerfisins og styrkja gagnsæi í eftirliti. Í mælaborðinu er hægt að skoða þróun meðal annars á eignum, fjárfestingum, rekstrarkostnaði og afhendingu raforku. Notendur geta síað gögn eftir fyrirtækjum, tímabilum og verðlagi til að fá betri yfirsýn yfir rekstur einstakra fyrirtækja og raforkukerfisins í heild. Mælaborðið verður jafnframt grunnur að fyrirhugaðri reglubundinni skýrslugjöf Raforkueftirlitsins um fjárhags- og tækniupplýsingar sérleyfisfyrirtækja. Fjárfestingar í raforkukerfinu hafa aukist Mælaborðið sýnir að fjárfestingar í íslenska raforkukerfinu hafa verið talsverðar undanfarin 14 ár. Árið 2024 nam eignastofn sérleyfisfyrirtækjanna um 291 milljörðum króna, þar af voru eignir Landsnets metnar á um 149 milljarða króna. Til samanburðar nam eignastofn sérleyfisfyrirtækja um 139 milljörðum króna árið 2011, þar af um 82 milljörða króna hjá Landsneti. Niðurstöður benda til þess að verðmæti eignastofnsins hafi því meira en tvöfaldast á tímabilinu. Rekstrarkostnaður hefur hækkað hraðar en afhending raforku Samanlagður rekstrarkostnaður raforkukerfisins nam um 156 milljörðum króna á tímabilinu 2011 og 2024. Árlegur meðalvöxtur rekstrarkostnaðar var um 5,9%. Á sama tímabili nam heildarafhending raforku um 300 TWst. Árlegur meðalvöxtur kerfisins var um 1,1%. Gagnsæi í eftirliti Með birtingu mælaborðsins fá bæði fyrirtæki, stjórnvöld og notendur raforkukerfisins betra aðgengi að upplýsingum um rekstur og þróun raforkukerfisins á Íslandi. Það styrkir gagnsæi í eftirliti og skapar betri forsendur fyrir upplýsta ákvarðanatöku. Opna mælaborðið
24. júní 2026
Auglýsing: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði
Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi. Markmið átaksins er að fjölga stöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðslu rafbíla og styðja þannig við orkuskipti í ferðaþjónustu og loftslagsmarkmið stjórnvalda. Markmið Styrkjunum er ætlað að: Fjölga gististöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðsluinnviðum fyrir rafbíla. Styðja við rafvæðingu bílaleiguflotans og hvetja ferðamenn til að velja rafbíla fremur en bíla sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti. Stuðla að þéttara neti og tryggari hleðsluaðstöðu við gististaði um land allt. Hverjir geta sótt um Umsækjandi skal vera lögaðili. Tvenns konar aðilar geta sótt um: Rekstrarleyfishafi gististaðar af tegund a (hótel) eða b (stærra gistiheimili) samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, með gilt rekstrarleyfi. Rekstraraðili hleðslustöðva sem sækir um í samvinnu við slíkan gististað. Þá skal samstarfssamningur liggja fyrir. Einstaklingar, A-hluta ríkisaðilar og lögaðilar í vanskilum við ríkissjóð geta ekki sótt um. Sjá nánar í handbók. Heildarfjárhæð til úthlutunar Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 50 m.kr. Styrkhlutfall og hámark Styrkhlutfall er allt að 33% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts. Hámarksfjárhæð styrks á hvern gististað: 1 m.kr. Ekkert lágmark er á styrkupphæð. Mótframlag umsækjanda skal vera að lágmarki 67% af styrkhæfum kostnaði. Helstu skilyrði verkefna Verkefnið er við gististað af tegund a eða b samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 sem rekinn er með gilt rekstrarleyfi. Sé umsækjandi rekstraraðili hleðslustöðva liggur fyrir samstarfssamningur við rekstrarleyfishafa gististaðarins. Verkefnið felur í sér uppsetningu að lágmarki tveggja nýrra hleðslustöðva (2x 22 kW). Eingöngu eru styrkt ný verkefni. Uppsetning hleðslustöðvanna má ekki vera hafin þegar sótt er um. Hleðslustöðvarnar skulu vera aðgengilegar gestum gististaðarins. Búnaður skal uppfylla viðeigandi öryggis- og CE-kröfur sem gilda á EES-svæðinu. Vinna við raflagnir og tengingar skal unnin af löggiltum rafverktaka og vera í samræmi við leiðbeiningar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um hleðslu rafbíla og raflagnir. Styrkþegi skuldbindur sig til að reka hleðslustöðvarnar í að lágmarki fimm ár frá gangsetningu. Styrkur greiðist í einni greiðslu eftir að hleðslustöðvarnar eru komnar í rekstur og lokaskýrsla hefur verið samþykkt. Umsóknarfrestur Opnað verður fyrir umsóknir 1. júlí 2026 og lokafrestur er til 15. október 2026 kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is. Nánari upplýsingar Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók sem fylgir þessari auglýsingu. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað“ á vef sjóðsins. Öðrum spurningum má beina til orkusjodur@uos.is.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800