Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Auglýsing: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús

Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 þann 1. október 2026.

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkjunum er ætlað að styðja við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og auðvelda húsfélögum sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum að ráðast í framkvæmdir.

Styrkhæf verkefni

Styrkhæf eru húsfélög fjöleignarhúsa sem eru með 8 íbúðir eða fleiri og þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf.

Styrkir eru meðal annars veittir fyrir lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði og fyrir stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishússins.

Styrkupphæð

Styrkupphæð getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, en þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði.

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí og er umsóknarfrestur vegna styrkjanna til 1. október kl. 15:00. Sótt er um í gegnum island.is á vef Loftslags- og orkusjóðs.

Nánari upplýsingar

Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús.

Spurningum má beina á orkusjodur@uos.is. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað" á heimasíðu sjóðsins.

Aðgerðir ríkisstjórnar

Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og aukinnar óvissu á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna stríðsátaka við Persaflóa sem kynntar voru á fréttamannafundi 10. apríl síðastliðinn.

Aðgerðirnar miða annars vegar að því að verja heimili fyrir áhrifum verðhækkana og hins vegar að því langtímaverkefni að gera sem flestum kleift að slíta sig frá dælunni og nota hreina íslenska orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Vegna hins síðarnefnda hefur Loftslags- og orkusjóður þegar auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land með það að markmiði að loka gatinu í hraðhleðsluneti á vegum landsins.

Þá verða styrkir vegna hleðsluinnviða við gististaði auglýstir innan skamms.

Samhliða vinna stjórnvöld að breytingum sem eiga að tryggja einfaldara og samræmdara greiðslufyrirkomulag við hleðslu rafbíla.

Fleiri fréttir

Skoða
2. október 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot – frestur framlengdur til 31. október
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028–2033. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 31. október 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.
24. september 2026
Auglýst eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar
Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.  Bláskelin fær nýtt hlutverk  Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira.  Hverju leitum við að?  Við mat á tilnefningum verður meðal annars horft til:  Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.  Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.  Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.  Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu. Góðar lausnir þurfa ekki alltaf að vera nýjar. Stundum felst hugvitið í því að heimfæra lausnir sem hafa reynst vel erlendis, horfa til baka,  enduruppgötva það sem virkaði og laga það að þörfum framtíðarinnar. Við leitum því bæði að nýjum og framsæknum lausnum og rótgrónum verkefnum sem hafa þegar sýnt árangur.  Hver á skilið Bláskelina 2026?  Tilnefna má fyrirtæki, stofnun, einstakling eða samtök fyrir verkefni eða lausn á sviði hringrásarhagkerfisins. Aðilar geta bæði tilnefnt eigin verkefni og annarra.   Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.  Tekið er við tilnefningum út 20. október 2026.   

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800