Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Auglýsing: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða

Markmiðið er að hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva. / Mynd: Unsplash.

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla á Íslandi. Markmið átaksins er að tryggja sterkt og þétt net hraðhleðslustöðva um land allt og styðja þannig við orkuskipti í samgöngum og loftslagsmarkmið stjórnvalda.

Markmið

Styrkjunum er ætlað að tryggja lágmarksaðgang að hleðsluinnviðum um allt land. Sérstök áhersla er lögð á að í hverjum þéttbýlisstað á Íslandi sé aðgangur að hraðhleðslustöð og að hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva.

Auglýst er eftir verkefnum:

  • Í öllum þéttbýlisstöðum þar sem ekki eru hraðhleðslustöðvar nú þegar eða hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi (verkefnaflokkur A).
  • Á stöðum á þjóðvegakerfinu þar sem lengst er á milli hraðhleðslustöðva (verkefnaflokkur B).

Heildarfjárhæð til úthlutunar

Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 150 m.kr.

Styrkhlutfall og hámark

  • Styrkur nemur allt að 50% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts.
  • Hámarksstyrkur er 20 m.kr. á hvert verkefni.
  • Styrkur greiðist í einni greiðslu eftir að verkefni er lokið og lokaskýrsla hefur verið samþykkt.

Hverjir geta sótt um

Umsækjendur skulu vera lögaðilar með þekkingu og reynslu af uppsetningu og/eða rekstri hraðhleðslustöðva. Einstaklingar og lögaðilar í ótengdum rekstri (svo sem gististaðir og veitingastaðir) eru ekki styrkhæfir. Sjá nánar í handbók.

Helstu skilyrði verkefna

  • Hleðslustöðvar á þjóðvegakerfinu skulu hafa að lágmarki 300 kW afl á allt að tveimur tenglum samtímis en 200 kW vegna hraðhleðslustöðva í þéttbýli. Þær skulu jafnframt styðja hleðslu 800 V bifreiða.
  • Stöðvar skulu taka við snertilausum greiðslum með greiðslukortum.
  • Stöðvar skulu vera aðgengilegar öllum allan sólarhringinn. Aðgengi hreyfihamlaðra skal tryggt.
  • Styrkþegi skuldbindur sig til að reka stöðina í að lágmarki 5 ár frá gangsetningu.
  • Sjá frekari skilyrði í handbók.

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 1. maí 2026 og framlengdur umsóknarfrestur er til 16. júní kl. 15:00.

Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is.

Nánari upplýsingar

Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða.

Spurningum má beina á orkusjodur@uos.is. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað" á heimasíðu sjóðsins.

Fleiri fréttir

Skoða
14. október 2026
Breytingar á styrkjum til kaupa á hreinorkubílum
Nýjar reglur um styrki til kaupa á hreinorkubílum taka gildi 1. nóvember 2026. Þá lækkar styrkur til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum úr 500.000 kr. í 400.000 kr. og hámarksverð styrkhæfra fólksbíla lækkar úr 10 milljónum króna í 8 milljónir króna. Reglugerð nr. 1090/2026 um Loftslags- og orkusjóð var birt í Stjórnartíðindum 13. október og tekur gildi 1. nóvember 2026. Hún leysir af hólmi reglugerð nr. 1566/2024 og tekur til allrar starfsemi sjóðsins. Helstu breytingar Lægri styrkur til fólksbíla. Frá og með 1. nóvember 2026 verður styrkur til kaupa á nýjum fólksbíl (M1) 400.000 kr. í stað 500.000 kr. Lægra verðþak fyrir fólksbíla. Eftir 1. nóvember 2026 verða fólksbílar sem kosta meira en 8 milljónir króna ekki styrkhæfir. Áður var hámarkið 10 milljónir króna. Lægri styrkur til bíla sem hafa áður verið skráðir erlendis. Bílar sem eru nýskráðir á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis geta fengið allt að 320.000 kr. í stað 400.000 kr. Styrkir til sendibíla óbreyttir. Styrkur til sendibíla (N1) verður áfram 500.000 kr. og verðþakið 10 milljónir króna. Umsóknir vegna minni vörubíla færast á Ísland.is. Frá 1. janúar 2027 verður hægt að sækja um styrk vegna vörubíla í flokki N2 (3,5 til 7 tonn) á Ísland.is. Takmarkanir á útflutningi styrktra bíla. Óheimilt verður að flytja styrkt ökutæki úr landi innan þriggja ára frá því styrkur er veittur. Sé það gert getur sjóðurinn krafist endurgreiðslu. Hvað ræður styrkfjárhæðinni? Styrkfjárhæðin fyrir fólksbíla og sendibíla miðast við þann dag sem umsókn er samþykkt eftir nýskráningu bílsins. Umsóknir sem eru samþykktar fyrir 1. nóvember 2026 fá því styrk samkvæmt eldri reglum, að því gefnu að öll skilyrði séu uppfyllt. Áfram gildir að sækja þarf um styrk innan 12 mánaða frá nýskráningu, að hvert ökutæki er aðeins styrkt einu sinni og að styrkurinn er greiddur skráðum aðaleiganda.
6. október 2026
Drekasvæðið - Samantekt á niðurstöðum rannsókna
Umhverfis- og orkustofnun telur litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu norðaustur af Íslandi. Þetta er niðurstaða yfirferðar stofnunarinnar á áratugalöngum rannsóknum á svæðinu og er í samræmi við fyrri niðurstöður þeirra aðila sem hafa rannsakað svæðið. Drekasvæðið er hluti af Jan Mayen hrygg, sem liggur frá Jan Mayen í suður og inn fyrir íslenska lögsögu. Svæðið hefur lengi vakið áhuga almennings og atvinnulífs. Þar hefur verið talið að kunni að leynast jarðlög sem eru sambærileg þeim sem geyma olíu og gas á norska landgrunninu og er einnig að finna á austurströnd Grænlands. Á undanförnum árum hafa nokkur olíufélög rannsakað svæðið á grundvelli sérleyfa sem íslensk stjórnvöld veittu. Félögin framkvæmdu meðal annars hljóðendurvarpsmælingar, segulmælingar og aðrar jarðeðlisfræðilegar rannsóknir til að meta möguleika á olíu- og gaslindum. Flóknari jarðfræði en áður var talið Niðurstöður rannsókna benda til þess að jarðfræði svæðisins sé mun flóknari en áður hafði verið gert ráð fyrir. Þykk basaltlög, mikil eldvirkni og umfangsmiklar brotahreyfingar í jarðskorpunni gera erfitt að greina eldri jarðlög sem gætu innihaldið kolvetni. Jafnframt benda niðurstöður til þess að þau jarðlög sem hugsanlega hafa myndað eða geymt olíu og gas hafi orðið fyrir verulegum áhrifum jarðfræðilegra ferla í gegnum tíðina. Öll félögin sem fengu leyfi á svæðinu skiluðu þeim að lokum inn án þess að ráðast í rannsóknarboranir. ÍSOR staðfestir niðurstöðurnar Umhverfis- og orkustofnun fól ÍSOR að fara yfir gögn leyfishafanna og leggja fram sjálfstætt mat. ÍSOR komst að þeirri niðurstöðu að eldvirkni og hreyfingar í jarðskorpu hefðu líklega raskað mögulegum olíu- og gaslindum á stórum hluta Drekasvæðisins. Að mati stofnunarinnar eru meiri líkur á varðveislu kolvetna norðar á Jan Mayen hrygg en innan Drekasvæðisins sjálfs. Enn er óvissa til staðar Umhverfis- og orkustofnun bendir á að engin rannsóknarhola hafi verið boruð á svæðinu. Því sé ekki hægt að útiloka með fullri vissu að þar sé að finna olíu eða gas. Stofnunin telur þó að fyrirliggjandi gögn bendi til þess að líkurnar á vinnanlegum kolvetnislindum séu mjög litlar. Til að draga verulega úr þeirri óvissu sem enn er til staðar þyrfti að bora djúpa rannsóknarholu, líklega á bilinu 3 til 6 kílómetra djúpa, með það fyrir augum að kanna gerð, eðli og ástand jarðlaga á svæðinu. Gögn verða gerð aðgengileg Með gagnsæi að leiðarljósi áformar Umhverfis- og orkustofnun að gera gögn sem safnast hafa á rannsóknatímanum aðgengileg vísindasamfélaginu og almenningi eftir því sem lög heimila. Jafnframt mun stofnunin undirbúa reglur og viðmið um afhendingu rannsóknar- og mæligagna til þeirra aðila sem hafa áhuga á að rannsaka svæðið nánar. Í ljósi þeirrar þekkingar sem nú liggur fyrir telur Umhverfis- og orkustofnun ekki forsendur fyrir því að auglýsa eftir umsóknum um ný leyfi til rannsókna eða vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800