Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Auglýsing: Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði

Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 þann 1. október 2026.

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi. Markmið átaksins er að fjölga stöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðslu rafbíla og styðja þannig við orkuskipti í ferðaþjónustu og loftslagsmarkmið stjórnvalda.

Markmið

Styrkjunum er ætlað að:

  • Fjölga gististöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðsluinnviðum fyrir rafbíla.
  • Styðja við rafvæðingu bílaleiguflotans og hvetja ferðamenn til að velja rafbíla fremur en bíla sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti.
  • Stuðla að þéttara neti og tryggari hleðsluaðstöðu við gististaði um land allt.

Hverjir geta sótt um

Umsækjandi skal vera lögaðili. Tvenns konar aðilar geta sótt um:

  1. Rekstrarleyfishafi gististaðar af tegund a (hótel) eða b (stærra gistiheimili) samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, með gilt rekstrarleyfi.
  2. Rekstraraðili hleðslustöðva sem sækir um í samvinnu við slíkan gististað. Þá skal samstarfssamningur liggja fyrir.

Einstaklingar, A-hluta ríkisaðilar og lögaðilar í vanskilum við ríkissjóð geta ekki sótt um. Sjá nánar í handbók.

Heildarfjárhæð til úthlutunar

Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 50 m.kr.

Styrkhlutfall og hámark

  • Styrkhlutfall er allt að 33% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts.
  • Hámarksfjárhæð styrks á hvern gististað: 1 m.kr.
  • Ekkert lágmark er á styrkupphæð.
  • Mótframlag umsækjanda skal vera að lágmarki 67% af styrkhæfum kostnaði.

Helstu skilyrði verkefna

  • Verkefnið er við gististað af tegund a eða b samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 sem rekinn er með gilt rekstrarleyfi.
  • Sé umsækjandi rekstraraðili hleðslustöðva liggur fyrir samstarfssamningur við rekstrarleyfishafa gististaðarins.
  • Verkefnið felur í sér uppsetningu að lágmarki tveggja nýrra hleðslustöðva (2x 22 kW).
  • Eingöngu eru styrkt ný verkefni. Uppsetning hleðslustöðvanna má ekki vera hafin þegar sótt er um.
  • Hleðslustöðvarnar skulu vera aðgengilegar gestum gististaðarins.
  • Búnaður skal uppfylla viðeigandi öryggis- og CE-kröfur sem gilda á EES-svæðinu.
  • Vinna við raflagnir og tengingar skal unnin af löggiltum rafverktaka og vera í samræmi við leiðbeiningar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um hleðslu rafbíla og raflagnir.
  • Styrkþegi skuldbindur sig til að reka hleðslustöðvarnar í að lágmarki fimm ár frá gangsetningu.
  • Styrkur greiðist í einni greiðslu eftir að hleðslustöðvarnar eru komnar í rekstur og lokaskýrsla hefur verið samþykkt.

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 1. júlí 2026 og lokafrestur er til 15. október 2026 kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is.

Nánari upplýsingar

Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók sem fylgir þessari auglýsingu. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað“ á vef sjóðsins. Öðrum spurningum má beina til orkusjodur@uos.is.

Fleiri fréttir

Skoða
24. september 2026
Auglýst eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar
Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.  Bláskelin fær nýtt hlutverk  Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira.  Hverju leitum við að?  Við mat á tilnefningum verður meðal annars horft til:  Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.  Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.  Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.  Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu. Góðar lausnir þurfa ekki alltaf að vera nýjar. Stundum felst hugvitið í því að heimfæra lausnir sem hafa reynst vel erlendis, horfa til baka,  enduruppgötva það sem virkaði og laga það að þörfum framtíðarinnar. Við leitum því bæði að nýjum og framsæknum lausnum og rótgrónum verkefnum sem hafa þegar sýnt árangur.  Hver á skilið Bláskelina 2026?  Tilnefna má fyrirtæki, stofnun, einstakling eða samtök fyrir verkefni eða lausn á sviði hringrásarhagkerfisins. Aðilar geta bæði tilnefnt eigin verkefni og annarra.   Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.  Tekið er við tilnefningum út 20. október 2026.   
22. september 2026
Nýjar tölur yfir losun gróðurhúsalofttegunda
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi dróst saman um 3,9% milli 2024 og 2025. Losunin var 10,6 milljón tonn af CO₂-ígildum (CO₂-íg.) árið 2025 og hefur aukist um 2,0% frá árinu 1990. Losun Íslands má skipta í þrjá meginflokka: Samfélagslosun, landnotkun og staðbundin iðnaður (ETS). Samfélagslosun Samfélagslosun Íslands dróst saman um 2,7% á milli 2024 og 2025. Hún var 2,8 milljón tonn CO₂-íg árið 2025. Umfangsmestu losunarflokkarnir voru vegasamgöngur, landbúnaður og fiskiskip. Gert er ráð fyrir að samdráttarkrafa Íslands í skuldbindingum gagnvart ESB verði að draga úr samfélagslosun um 41% árið 2030, miðað við árið 2005. Núgildandi krafa er 29%. Framreikningar sýna að Ísland standist líklega skuldbindingar fyrir tímabilið 2021-2025 þegar tekið er tillit til sveigjanleika milli skuldbindingarkerfa. Fyrir tímabilið 2026-2030 er hins vegar ólíklegt að Ísland standist skuldbindingar sínar, þrátt fyrir slíkan sveigjanleika. Áætlaður samdráttur í losun er um 21% árið 2030, miðað við losun ársins 2005. Tækifæri til samdráttar liggja í því að ráðast í frekari aðgerðir í loftslagsmálum. Það er hægt með því að fylgja eftir aðgerðum sem þegar eru til umræðu ásamt því að finna nýjar leiðir til samdráttar. Ef Ísland nær ekki skuldbindingum sínum ber að greiða fyrir það sem upp á vantar með kaupum á losunarheimildum frá öðrum ríkjum. Landnotkun Losun frá landnotkun var 6,1 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur dregist saman um tæp 9,1% frá 1990. Meirihluti losunar frá landnotkun stafar af framræstu votlendi. Framreikningar sýna samdrátt í losun frá landnotkun yfir spátímabilið, vegna aukinnar endurheimtar votlendis, vaxandi bindingar í skóglendi og aukinnar landgræðslu. Útlit er fyrir að Ísland muni standast skuldbindingar sínar fyrir tímabilið 2021-2025. Staðbundinn iðnaður (ETS) Losun frá staðbundnum iðnaði á Íslandi (aðallega ál- og kísilver) sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) var 1,7 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur aukist um 97% frá árinu 2005. Losunin dróst saman um 11% frá árinu 2024 aðallega vegna bilunar hjá Norðuráli og rekstrarstöðvunar PCC Bakka. Samdráttur hefur átt sér stað í viðskiptakerfinu í ESB. Með þátttöku í kerfinu er ekki um að ræða beinar samdráttarkröfur fyrir rekstraraðila á Íslandi.  Umhverfis- og orkustofnun skilaði nýlega til Evrópusambandsins bráðabirgðatölum um losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2025. Skilin eru unnin í nánu samstarfi við Land og skóg sem ber ábyrgð á landnotkunarhluta bókhaldsins.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800