Umhverfis- og orkustofnun auglýsir áform um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir North Tech Drilling ehf. fyrir starfsemi jarðborsins Von, WEI DR-40e í eigu fyrirtækisins.
North Tech Drilling ehf. óskar eftir bráðabirgðaheimild fyrir rekstri jarðborsins á meðan Umhverfis- og orkustofnun vinnur að útgáfu á starfsleyfi fyrir starfseminni. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.
Frestur til að skila inn athugasemdum við auglýsinguna er til kl. 12:00 þann 17. september 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar UOS-7192.





