Vinsamlegast athugaðu að vefurinn er í vinnslu. Ef þú sérð eitthvað sem mætti betur fara, þá máttu láta okkur vita.

Framlenging á starfsleyfi Lækjarbotnableikju

Aðrar auglýsingar vegna leyfisveitinga

Umhverfis- og orkustofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Lækjarbotnableikju fyrir rekstur landeldis að Lækjarbotnum í Rangárþingi ytra.

Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfis- og orkustofnunar frá 10. janúar til og með 13. janúar s.l.

Framlenging á starfsleyfi Lækjarbotnableikju er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 15. janúar 2026.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar.

Tengd skjöl:

Ákvörðun um framlengingu á starfsleyfi Lækjarbotnableikju

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, 603 Akureyri

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík