Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Umsókn um starfsleyfi – Guðlaugur H. Kristmundsson

Umhverfis- og orkustofnun hefur móttekið umsókn Guðlaugs H Kristmundssonar (áður Lækjarbotnableikja) um starfsleyfi fiskeldisstöðvar í Rangárþingi ytra, norðan Hellu. Um er að ræða 20 tonna bleikjueldi. Starfsleyfi var í gildi frá 2014-2025 og var það framlengt í janúar sl. um eitt ár. Ekki er um að ræða breytingu á umfangi. 

Umhverfis- og orkustofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi. Á næstunni verður unnin tillaga að nýju starfsleyfi og verður hún auglýst opinberlega í fjórar vikur.

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu á starfsleyfinu verður tekin.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800